Ebba lætur Ólaf Ragnar heyra það – „Eitthvað annað en sumir götustrákarnir“

Ebba Margrét Magnúsdóttir læknir gagnrýnir Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, harðlega fyrir ummæli hans um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hún veltir því fyrir sér hvort fyrrverandi forseti sé farinn að taka sér Donald Trump Bandaríkjaforseta til fyrirmyndar þegar kemur að því að tala niður til kvenna.

Tilefnið eru ummæli Ólafs Ragnars í kvöldfréttum RÚV í gær, þar sem hann sakaði Þorgerði Katrínu um að hafa tekið upp „götustelpustíl“ í umræðum um utanríkismál. Sagði hann slíkan málflutning hvorki sæmandi né svaraverðan.

Ummælin féllu í kjölfar gagnrýni utanríkisráðherra á Ólaf Ragnar, meðal annars vegna þess að hann hafði deilt færslu Sergeis Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, á samfélagsmiðlum.

Sagði Þorgerður að erlendir ráðamenn hefðu spurt hana út í málflutning fyrrverandi forseta um Rússland og Úkraínu.

„Þarf hann að tala niður til öflugra kvenna?“

Í pistli sem Ebba birtir í dag á Vísi segist hún hafa flett orðinu götustelpa upp í orðabók og komist að því að það merki illa siðuð stúlka.

„Hvaða nýja stíl er fyrrum forseti okkar farinn að tileinka sér?“ spyr hún.

Ebba lætur ekki þar við sitja og dregur upp samanburð við Bandaríkjaforseta.

„Getur verið að hann þurfi að tala niður til öflugra kvenna líkt og kollegi hans vestanhafs gerir ítrekað og þannig reyna að upphefja sjálfan sig.“

Hún segir þetta vond siðaskipti hjá Ólafi Ragnari og skýtur jafnframt á pólitíska afstöðu hans í gegnum tíðina.

„Það eru vond siðaskipti hjá honum sem reyndar hefur margsannað að það er í lagi að skipta um skoðun og sigla með hinu liðinu næst. Berast bara eftir því hvaða vindar blása.“

„Eitthvað annað en sumir götustrákarnir“

Ebba tekur jafnframt upp hanskann fyrir Þorgerði Katrínu og segir hana öfluga konu sem þori að standa með sannfæringu sinni. Hún bendir á að utanríkisráðherrann hafi stofnað eigin stjórnmálaflokk, tekist á við mótlæti og haldið ótrauð áfram.

Ebba tekur fram að hún hafi hvorki kosið Viðreisn né verið sérstakur aðdáandi flokksins. Hún hafi hins vegar kynnst Þorgerði Katrínu persónulega í ferð síðasta sumar og beri henni afar vel söguna.

„Þorgerður Katrín er skemmtileg, heillandi kona sem gaman er að vera með. Hún er skvísa, töffari, staðföst og mikil keppnismanneskja.“

Hún segir hana lausa við hroka og yfirlæti og telur hana ekki þurfa að tala aðra niður til að upphefja sjálfa sig.

„Eitthvað annað en sumir götustrákarnir sem hafa aldrei lært að hegða sér.“

Ebba lýkur pistlinum með hvatningu til Íslendinga um að vera stoltir af utanríkisráðherra sínum, styðja hana í störfum hennar og vanda orðræðuna.

„Vöndum mál okkar og reynum að tala fallega við og um hvert annað, þá náum við settu marki.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅