Leita að rétta staðnum fyrir nýtt hreiður

Hver man ekki eftir fjölskyldunni fallegu á The Coocoo’s Nest? Samsett mynd/Aðsend

Íris Ann Sigurðardóttir og Lucas Keller, sem ráku veitingastaðinn The Coocoo’s Nest, fluttu aftur heim í sumar eftir tæplega ársdvöl á Ítalíu. Nú standa þau fyrir matarviðburðum undir nafninu Il Nido og hafa augun opin fyrir húsnæði undir nýjan veitingastað.

„Við fluttum aftur heim í sumar eftir tæplega ársdvöl á Ítalíu, þar sem Lucas tók meðal annars þátt í að opna nýtt bakarí í Lucca. Bakaríið hlaut á skömmum tíma viðurkenningu frá Gambero Rosso fyrir að vera besta nýja bakaríið á Ítalíu og sérstaka tilnefningu fyrir súrdeigsbrauðið sitt, en Gambero Rosso er ein virtasta útgáfa Ítalíu á sviði matar og veitingahúsamenningar,“ segir Íris Ann.

„Eftir heimkomuna höfum við verið að njóta þess að skipuleggja skemmtilega matarviðburði og vinna með ólíkum samstarfsaðilum. Lucas hefur áhuga á að opna nýjan veitingastað og við höfum því augun opin fyrir rétta húsnæðinu og spennandi tækifærum. Þar til rétta tækifærið birtist ætlum við hins vegar að halda áfram að elda, skapa og hitta fólk í gegnum viðburðina.“

Coocoo's Nest kokkabókin er eitt best geymda leyndarmál landsins þegar kemur að matreiðslu. Ljósmynd/Aðsend

Um 200 manns á uppskeruhátíð

Í lok september héldu þau mexíkóska uppskeruhátíð á Skreið, þar sem bæði kunnugleg og ný andlit voru meðal gesta.

Ánægð með viðburðinn á Skreið. Andri Geirsson, Sigurður Rúnar Rúnarsson, Telma Geirsdóttir, Auður Ýr Elísabetardóttir og Marinó Sigurðsson. Ljósmynd/Aðsend

„Þar fengum við meðal annars að vinna með dásamlega fallegt og gott hráefni frá Reykjalundi í Grímsnesi. Hátíðin heppnaðist ótrúlega vel og um 200 manns, bæði gamlir viðskiptavinir og ný andlit, mættu og tóku þátt.

Í kjölfarið buðum við svo upp á dögurð á Skreið. Coocoo’s var lengi vel þekkt fyrir dögurðinn sinn og okkur fannst mjög skemmtilegt að fá tækifæri til að taka hann aftur upp, en að þessu sinni með nýju ívafi. Dögurðurinn var í takt við Skreið, með spænskum áhrifum og nýjum uppskriftum sem við þróuðum sérstaklega fyrir tilefnið,“ segja þau. 

Dögurðurinn var í takt við Skreið, með spænskum áhrifum.

Dögurðurinn var í takt við Skreið, með spænskum áhrifum. Ljósmynd/Aðsend

Bættu föstudeginum við

Næst liggur leiðin á Skál, þar sem þau bjóða upp á dögurð um helgina. Áhugi gesta varð til þess að þau ákváðu að bæta við degi.

„Við finnum að fólk kann enn vel að meta góðan dögurð og að tilefni til að gera sér glaðan dag með góðum mat eru alltaf kærkomin. Næstu helgi verðum við aftur með dögurð, en að þessu sinni hjá vinum okkar á Skál. Við höfum nýtt tækifærið til að þróa nýja rétti. Sumir þeirra eiga rætur að rekja til bragða sem gestir Coocoo’s Nest þekkja, en koma nú fram í nýrri mynd, með nýjum nálgunum og hráefnum. Eftirspurnin hefur verið það mikil að við ákváðum að bæta föstudeginum við.

Það eru þegar fleiri samstarfsverkefni í kortunum og einnig viðburðir sem við ætlum að skipuleggja sjálf. Við erum ótrúlega spennt fyrir þessum vetri og finnum að fólk er tilbúið í girnilegan vetur með okkur. Það er því um að gera að fylgjast með, því við erum með ýmislegt skemmtilegt í bígerð,“ segja þau. 

Í lok september héldu þau mexíkóska uppskeruhátíð á Skreið, þar sem bæði kunnugleg og ný andlit voru meðal gesta. Ljósmynd/Aðsend

Nýtt nafn með kunnuglega merkingu

Verkefnin þeirra falla nú undir nafnið Il Nido, en merking þess endurspeglar það sem þau vilja skapa í kringum matinn.

Coocoo’s var lengi vel þekkt fyrir dögurðinn sinn. Ljósmynd/Aðsend

„Við höfum nú tekið upp nafnið Il Nido, sem þýðir „hreiðrið“ á ítölsku. Okkur finnst nafnið eiga einstaklega vel við, því við trúum því að matarmenning snúist um svo miklu meira en matinn sjálfan. Hún skapar ákveðið hreiður þar sem fólk kemur saman, deilir góðum mat, upplifunum og stundum. Það er einmitt þessi stemning sem okkur langar að skapa með verkefnunum okkar,“ segja þau að lokum. 

„Við finnum að fólk kann enn vel að meta góðan dögurð og að tilefni til að gera sér glaðan dag með góðum mat eru alltaf kærkomin,“ segja þau í viðtalinu. Ljósmynd/Aðsend

Það verður fjör næstu helgi á Skál þar sem bröns verður í öndvegi. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅