Framboð Infantinos ólöglegt?

Gianni Infantino sækist eftir fjórða kjörtímabilinu.

Gianni Infantino sækist eftir fjórða kjörtímabilinu. AFP/Alfredo Estrella

Miguel Maduro, fyrrverandi yfirmaður hjá FIFA, segir að Gianni Infantino sé ekki kjörgengur til að sækjast eftir fjórða kjörtímabilinu sem forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins.

„Gianni Infantino hefur verið kjörinn þrisvar sinnum,“ sagði Maduro á fjarfundi sem hagsmunasamtökin FairSquare skipulögðu í gær en hámarksseta forseta er þrjú kjörtímabil.

Ráð FIFA ákvað að fyrsta tímabil hans, frá 2016 til 2019, skyldi ekki teljast með í hámarkinu um þrjú kjörtímabil.

Maduro heldur því fram að ráðið hafi ekki haft vald til að taka þá ákvörðun og hvatti til þess að ákvörðuninni yrði skotið til Íþróttagerðardómstólsins (CAS).

Hann sagði einnig að óttaástand ríkti þegar kæmi að mótstöðu við Infantino.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅