Bað menn um að lemja fyrrverandi kærastann

Aðalmeðferð í máli gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur hélt áfram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveir menn sem þekktu Írisi Helgu Jónatansdóttur lítillega báru vitni í dag. Eiga þeir það sameiginlegt að Íris hafi nálgast þá og beðið þá um að ganga í skrokk á fyrrverandi kærasta sínum. 

Aðalmeðferð í máli gegn Írisi heldur áfram í dag í Héraðsdómi Reykjaness.

Íris er ákærð fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, skjalafals, rangar sakargiftir og barnaverndarlagabrot. 

Ætlaði að verða við því í fyrstu

Annar mannanna sagðist í upphafi hafa verið reiðubúinn til að bjóða fram aðstoð sína og í það minnsta ræða við fyrrverandi kærasta hennar en eftir nánari eftirgrennslan hans á stöðu mála hafi hann dregið í land. 

Hinum manninum hafði Íris sent myndskeið af heimili fyrrverandi kærasta síns og látið heimilisfang hans fylgja með í þeirri von um að hann myndi heimsækja fyrrverandi kærastann og lúskra á honum. 

Hættu að vera vinkonur árið 2022

Þá báru tvær fyrrverandi vinkonur Írisar að auki vitni í dag og lýstu báðar hvernig þær slitu vinskap við hana árið 2022.

Önnur þeirra hafði heyrt af deilum Írisar og fyrrverandi kærasta hennar og upphaflega stutt við bak Írisar en síðar hafi tvær grímur runnið á hana þegar hún heyrði út undan sér lygasögur um sjálfa sig sem Íris hafði búið til. 

Að auki hafði Íris beðið hana um að koma með sér að keyra fram hjá heimili mannsins til þess að fylgjast þar með. Þá hafði hún séð Írisi skipta um aðganga á samfélagsmiðlum og gaf því undir fótinn að Íris væri manneskjan á bak við fölsku aðgangana sem sent höfðu skilaboð um allar trissur.

Þá taldi hún Írisi hafa logið því að sér að hún hefði gert tilraun til sjálfsvígs og að hún væri með krabbamein. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅