Gjöld og skattar hærri en tapreksturinn
Arctic Fish er með höfuðstöðvar á Ísafirði og skráð á Euronext Growth í Ósló. Félagið rekur eldi í sjókvíum á Vestfjörðum. Ljósmynd/Arctic Fish
Eftir skatta nam tap Arctic Fish fyrstu níu mánuði ársins 2,9 milljörðum króna, samanborið við 3,8 milljarða á sama tímabili í fyrra, að því er fram kemur í uppgjöri félagsins fyrir þriðja ársfjórðung.
Fram kemur í tilkynningu að félagið hafi slátrað 15.613 tonnum af laxi á fyrstu níu mánuðum ársins.
„Það er 48% aukning frá sama tímabili í fyrra og meira en slátrað var allt árið 2025, sem var þá metár með 14.791 tonn.“
Rekstrartekjur eru sagðar hafa numið um 13,5 milljörðum króna, samanborið við 9,1 milljarð króna á sama tímabili í fyrra, sem einnig sé 48% aukning.
Ósjálfbær gjaldtaka
„Við erum að vaxa og reksturinn er að batna, en gjaldtakan eins og hún er í dag er ekki sjálfbær. Bein gjöld og skattar á fyrstu níu mánuðum ársins eru hærri en sem nemur öllu rekstrartapi félagsins,“ segir Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish, í tilkynningunni.
„Greinin þarf fyrirsjáanlegan og stöðugan lagaramma og lægri gjöld til að geta haldið áfram að byggja upp.“
Þá segir hann að frumvarp til laga um lagareldi skipti sköpum fyrir greinina, bæði fyrir sjókvíaeldi og fyrir landeldi sem sé í uppbyggingu víða um land.
„Við vonumst til að frumvarpið verði að lögum fyrir áramót og hvetjum atvinnuvegaráðherra til að leggja það fram á Alþingi á þessu ári,“ segir hann.
Reksturinn batnar
Fram kemur í tilkynningunni að þrátt fyrir aukið sláturmagn sé rekstur félagsins enn erfiður, líkt og tap tímabilsins ber vitni um.
Arctic Fish gerir upp í evrum. Fjárhæðir í krónum eru umreiknaðar á genginu 143,3 kr. á evru, að því er segir í tilkynningu. Tafla/Arctic Fish
„Rekstrarafkoma fyrir gangvirðisbreytingar lífmassa (operational EBIT) var neikvæð um 763 milljónir króna, en var neikvæð um 1,5 milljarða króna árið áður. Rekstrarafkoma á hvert kíló batnaði úr -142 kr. í -49 kr.“
Þá kemur fram að á þriðja ársfjórðungi hafi verið slátrað 3.990 tonnum, 26% minna en á sama fjórðungi í fyrra, en sláturmagn hafi verið meira á fyrri árshelmingi en í fyrra.
„Rekstrartekjur fjórðungsins námu um 3,3 milljörðum króna, samanborið við 4,2 milljarða króna í fyrra. Rekstrarafkoma fjórðungsins batnaði engu að síður um 335 milljónir króna, sem endurspeglar hagræðingu og aukna stærðarhagkvæmni.“
Skattar og gjöld vega þungt
Arctic Fish bendir líka á að bein gjöld og skattar, þar á meðal fiskeldisgjald, umhverfisgjald og hafnargjöld, hafi numið um 817 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins.
„Það er meira en sem nemur öllu rekstrartapi félagsins á tímabilinu.“
Hvað varðar rekstrarhorfur segir að spá félagsins um slátrað magn árið 2026 sé óbreytt, 18.000 tonn, sem sagt er vera 22% aukning frá fyrra ári og nýtt met.
„Fyrir árið 2027 gerir félagið ráð fyrir að slátra 18.500 tonnum. Lífmassi í sjó í lok fjórðungsins var 13.971 tonn, 12% minni en á sama tíma í fyrra, þar sem meira var slátrað fyrr á árinu.“
Jafnframt kemur fram að vaxtaberandi skuldir að frádregnu handbæru fé hafi í lok ársfjórðungsins numið um 21,2 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall verið 30,7%.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

