Sigur demókrata ógnar framtíð gagnavera
Stórsigrar frambjóðenda Demókrataflokksins ógna framtíðarhorfum orkufrekra gagnavera í lykilríkjum Bandaríkjanna og gætu hægt á innleiðingu gervigreindar sem hefur knúið áfram hækkun verðbréfa á Wall Street undanfarin fjögur ár.
Horfur á strangari reglum þrýstu á hlutabréf stórfyrirtækja á sviði gervigreindar, svo sem SpaceX í eigu Elons Musk, fyrir opnun bandarískra markaða, eftir að hlutabréf helstu örgjörvaframleiðenda í Asíu, þar á meðal Samsung í Suður-Kóreu, lækkuðu.
Eftir kosningabaráttu sem einkenndist af vaxandi áhyggjum af umhverfisáhrifum gagnavera sem spretta upp víðs vegar um Bandaríkin mátti Donald Trump forseti, sem er ötull stuðningsmaður lágmarksregluverks fyrir það sem hann kallar „ofurgreind“, horfa upp á Repúblikanaflokk sinn fá harða útreið.
Demókratar unnu mikilvæg vígi á borð við Texas, þar sem frambjóðendur sem styðja strangari reglur um gagnaver unnu bæði öldungadeildarsætið og ríkisstjóraembættið.
„Við þurfum tafarlaust bann við gagnaverum sem gildir þar til löggjafarþingið getur komið saman og sett raunverulegar varnir, svo að Texasbúar fái sæti við borðið og geti ákveðið hvort og hvernig gagnaver koma inn í samfélög þeirra,“ sagði Gina Hinojosa, lögfræðingur sem sigraði fráfarandi ríkisstjóra Texas, Greg Abbott, í kosningabaráttunni.
Abbott hafði viljað gera Texas að „taugamiðstöð“ gervigreindar og uppbyggingar gagnavera, en hann hefur síðan breytt afstöðu sinni í ljósi vaxandi andstöðu almennings vegna orku- og vatnsöflunar.
Gagnaver þurfa mikið magn af ferskvatni til að kæla netþjóna, sem vekur ótta við staðbundinn vatnsskort.
Hinojosa hefur hvatt til þess að skattundanþágum geirans verði hætt, líkt og flokksbróðir hennar James Talarico, sem var kjörinn öldungadeildarþingmaður fyrir Texas, í gær.
Greinendur höfðu lýst úrslitunum í hinu afar íhaldssama Texas sem mikilvægu prófi fyrir framtíð innviða gervigreindar.
Vegna ríkulegs orkuframboðs og hagstæðs regluverks er gert ráð fyrir að Texas standi undir nærri 30 prósentum af eftirspurn landsins eftir raforku til gervigreindarstarfsemi árið 2028. Spáð er að hlutfallið hækki verulega, samkvæmt útreikningum Bloom Energy.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


