Ráðherra hefur þungar áhyggjur
Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur þungar áhyggjur af þeim einstaklingum sem bíða eftir meðferð á Vogi og segir ljóst að núverandi staða sé óviðunandi.
Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðherra vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins um stöðuna á Vogi, þar sem starfsemin hefur verið rekin á lágmarksafköstum frá því í byrjun ágúst. Í síðustu viku voru átta sjúklingar í innlögn á Vogi en sjúkrahúsið getur tekið á móti 45.
Spurt var hvort ekki væri komið að því að heilbrigðisyfirvöld gripu inn í og leystu þann hnút sem staðan þar er í. Segir í svari ráðherrans að Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og SÁÁ vinni að endurskoðun á núgildandi samningi með það að markmiði að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu SÁÁ og að þeirri vinnu miði vel áfram.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗