Gerrard að taka við Hollywood-liðinu?

Steven Gerrard.

Steven Gerrard. AFP/Oli Scarff

Steven Gerrard, goðsögn hjá Liverpool, er opinn fyrir því að taka við sem knattspyrnustjóri Wrexham ef velska knattspyrnufélagið rekur Phil Parkinson, að sögn talkSPORT.

Steve Cooper, fyrrverandi knattspyrnustjóri Nottingham Forest, er einnig á meðal mögulegra arftaka, ásamt Rob Edwards og Carlos Corberán.

Sæti Parkinsons er orðið heitt en Wrexham er með 14 stig eftir 13 leiki í ensku B-deildinni og í 18. sæti af 24 liðum.

Wrexham er í eigu leikaranna Ryans Reynolds og Robs McElhenney.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅