John Frieda látinn 75 ára að aldri
John Frieda heitinn ásamt Gail Federici, sem hann átti samstarf við um þróun hárvörumerkis síns, á viðburði í New York árið 2014. AFP/Robin Marchant
Breski hárgreiðslumeistarinn og athafnamaðurinn John Frieda er látinn, 75 ára að aldri. Frieda var einn þekktasti hárgreiðslumaður heims og stofnandi samnefnds hárvörumerkis sem naut mikilla vinsælda víða um heim.
Greint var frá andlátinu á Instagram-síðu hárgreiðslustofu hans í gær. Þar kom fram að hann hefði látist í friði í faðmi fjölskyldunnar. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp.
Í tilkynningunni er Frieda minnst sem mikils frumkvöðuls og leiðbeinanda sem hafði djúpstæð áhrif á samstarfsfólk sitt og hárgreiðslufagið í heild.
Greiddi hár heimsfrægra stjarna
Frieda fæddist árið 1951 og fetaði í fótspor föður síns, sem rak hárgreiðslustofu í London. Hann hóf ungur störf við hárgreiðslu og opnaði eigin stofu árið 1976, þá aðeins 25 ára gamall.
Á löngum og farsælum ferli sínum greiddi hann hár fjölmargra heimsfrægra einstaklinga, þeirra á meðal Díönu prinsessu, Madonnu, Nicole Kidman, Gwyneth Paltrow og Mick Jagger.
Frieda haslaði sér einnig völl í snyrtivöruiðnaðinum og setti hina vinsælu Frizz-Ease-hárvörulínu á markað árið 1988. Síðar fylgdi Sheer Blonde-vörulínan. Árið 2002 seldi hann hárvörufyrirtæki sitt japanska stórfyrirtækinu Kao en hélt áfram rekstri hárgreiðslustofa í London og Bandaríkjunum.
Frizz-Ease-hárvörulínan kom á markað árið 1988 og varð ein þekktasta vörulína John Frieda. Ljósmynd/John Frieda
Frieda var áður kvæntur söngkonunni Lulu en þau eignuðust einn son saman. Hann lætur eftir sig eiginkonu sína, Frances Avery Agnelli, þrjú börn, stjúpdóttur og tvö barnabörn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/94/1689448.jpg)
