Myndir: Fögnuður, sjálfur og hjartnæm augnablik
Stuðningsmaður demókratans James Talarico í Texas fagnar nýjustu kosningatölum. AFP/Ronaldu Schemidt
Demókratar fögnuðu víða um Bandaríkin eftir sigur þeirra í báðum deildum þingins eftir kosningarnar í landinu.
Margir voru með símana á lofti og tóku sjálfur á kosningavökum, auk þess sem fögnuðurinn var ósvikinn þegar nýjustu tölur voru kynntar.
Keisha Lance Bottoms, ríkisstjóri Georgíu, og bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Raphael Warnock sitja fyrir á sjálfu á kosningavöku. AFP/Megan Varner
Sömuleiðis fönguðu ljósmyndarar mörg hjartnæm augnablik á filmu.
Randy Villegas, frambjóðandi demókrata í Kaliforníu, dansar við móður sína á kosningavöku í Bakersfield í Kaliforníu í gærkvöldi. AFP/Mario Tama
Sigur Demókratafloksins mun veita stjórnarandstöðunni vald til að stöðva lagafrumvörp, hefja víðtækar rannsóknir á stjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og koma í veg fyrir skipanir hans í dómaraembætti og æðstu stöður hjá hinu opinbera.
Stuðningsmaður demókratans James Talarico fagnar eftir að fregnir bárust af sigri hans í Texas. AFP/Ronaldo Schemidt
Annie Andrews, frambjóðandi demókrata í Suður-Karólínu, situr fyrir á sjálfu með vinum á hótelherbergi eftir að hafa fengið jákvæðar niðurstöður úr kosningunum. AFP/Win McNamee
Aaron D. Ford, frambjóðandi demókrata í Nevada, heldur á súkkulaðistykki á kosningavöku. AFP/Ethan Miller
Beðið eftir niðurstöðum á kosningavöku frambjóðanda repúblikana í Texas, Ken Paxton. AFP/Ricardo Arduengo
Abdul El-Sayed, frambjóðandi demókrata í Michigan, ásamt eiginkonu sinni, Dr. Sarah Jukaku, á kosningavöku. AFP/Jeff Kowalsky
Kona með límmiða á enninu þar sem stendur „Ég kaus” fyrir utan kjörstað í Texas. AFP/Ricardo Arduengo
Repúblikaninn Jon Husted hallar sér að eiginkonu sinni, Tina Husted, á kosningavöku í Ohio. AFP/Jon Cherry
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗











