Stoðir fara yfir 20% í Ásum
Fjárfestingafélagið Stoðir hefur bætt við hlut sinn í skráða félaginu Ásum, en það er móðurfélag Símans og fleiri félaga. Félagið keypti í gær 75 milljón hluti, eða rúmlega 3% hlut í félaginu og er með því komið upp í 22,34% hlut.
Stoðir er stærsti eigandi Ása, en á eftir Stoðum er LSR með 11,2% hlut og Brú lífeyrissjóður með 10,45%.
Gengi bréfa Ása hefur hækkað um 6,42% í viðskiptum í dag og er nú 11,6 krónur á hlut. Markaðsvirði bréfanna sem keypt voru í gær er því núna um 870 milljónir.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗