Stjórnin taldi fund um gagnrýni Harðar óþarfan
Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar. Stjórnin taldi ekki þörf á fundi með ráðherra um samskiptin við ráðuneytið, sem Hörður hafði gagnrýnt. Samsett mynd
Stjórn Landsvirkjunar ákvað að fylgja ekki eftir fundi með fjármálaráðherra þar sem ræða átti samskipti fyrirtækisins við ráðuneytið. Hörður Arnarson, þáverandi forstjóri, hafði átt frumkvæði að fundinum en stjórnin taldi síðar ekki þörf á honum. Að hennar eigin mati voru samskiptin eðlileg.
Þetta kemur fram í skriflegum svörum Brynju Baldursdóttur, stjórnarformanns Landsvirkjunar, við fyrirspurn mbl.is.
Hörður hafði gagnrýnt samskipti stjórnarinnar við ráðuneytið. Í bréfi til Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra 26. október lýsti hann því að stjórnin hefði lagst gegn fundi um málið þrátt fyrir ítrekaðar óskir hans. Morgunblaðið greindi frá efni bréfsins 2. nóvember.
Ráðuneytið lagði til að fundinum yrði frestað
Í svörum Brynju kemur fram að stjórnin hafi í nóvember 2025 samþykkt tillögu Harðar um að óska eftir fundi með ráðherra. Þar átti að ræða hvernig samskiptum Landsvirkjunar og ráðuneytisins yrði háttað.
Fundurinn var bókaður 7. janúar og áttu Hörður, Brynja og Berglind Ásgeirsdóttir varaformaður stjórnar að sitja hann.
Rétt fyrir jól hafi ráðuneytið haft samband við Brynju og greint frá því að ráðherra óskaði eftir upplýsingafundi með allri stjórninni.
„Lagt var til að sá fundur yrði haldinn fyrst og að fundinum með forstjóra yrði frestað. Stjórn varð við því og fundur ráðherra með stjórn var haldinn 6. janúar.“
Stjórnin hafi síðan endurmetið þörfina fyrir fundinn sem Hörður hafði óskað eftir.
„Samskiptin við ráðuneytið voru í samræmi við eigendastefnu ríkisins og ekki var um óeðlileg afskipti að ræða. Því var ekki talin þörf á sérstökum fundi og ekki bókaður nýr fundur.“
Í svörunum kemur ekki fram hvort Hörður hafi verið sammála þeirri ákvörðun eða hvenær honum hafi verið tilkynnt um hana.
Ráðherra hefði verið reiðubúinn að funda
Í viðtali við mbl.is að kvöldi 3. nóvember sagði Daði Már að ósk um fund með stjórn og forstjóra hefði ekki verið fylgt eftir. Hann hefði verið reiðubúinn að taka fundinn.
Í samtali við mbl.is fyrr sama dag sagði ráðherrann að um tvo aðskilda fundi hefði verið að ræða. Ekki hefði verið rúm í dagskránni fyrir fund með stjórn og forstjóra og beiðninni síðan ekki verið fylgt eftir.
Brynja segir hins vegar í svörum sínum að fundurinn hafi verið bókaður en honum frestað að tillögu ráðuneytisins. Ákvörðunin um að óska ekki eftir nýjum fundi hafi síðan verið stjórnarinnar.
Segir efni Landsnetsdeilunnar ekki hafa verið rætt
Á fundi ráðherra með stjórn Landsvirkjunar 6. janúar bar ágreining fyrirtækisins við Landsnet á góma, án þess að Hörður væri viðstaddur. Það kom fram í umfjöllun Morgunblaðsins 2. nóvember um fundargerð ráðuneytisins.
Stjórnin hefur sagt að forstjóri eða staðgengill hans hafi setið fundi með ráðuneytinu þegar rekstrarmál voru rædd. Því skiptir máli hvort umræðan um Landsnetsdeiluna hafi fallið undir slík mál.
Brynja segir í svörum sínum að Landsnet hafi ekki verið á dagskrá fundarins og að efni ágreiningsins hafi ekki verið rætt.
„Ráðherra nefndi að óheppilegt væri að ágreiningur fyrirtækjanna birtist í fjölmiðlum og stjórnin tók undir það.“
Hún segir ráðherra ekki hafa óskað eftir breyttri afstöðu eða framgöngu Landsvirkjunar í málinu. Að sögn Brynju breytti stjórnin engu í kjölfar fundarins.
Fundargerðir ekki birtar opinberlega
Brynja segir að fundargerðir stjórnar Landsvirkjunar séu ekki birtar opinberlega. Hún vísar til þess að fyrirtækið starfi á samkeppnismarkaði og sé undanþegið gildissviði upplýsingalaga.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗