Stoðir fara yfir 20% í Ásum

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða hf.

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða hf. Ljósmynd/Aðsend

Fjárfestingafélagið Stoðir hefur bætt við hlut sinn í skráða félaginu Ásum, en það er móðurfélag Símans og fleiri félaga. Félagið keypti í gær 75 milljón hluti, eða rúmlega 3% hlut í félaginu og er með því komið upp í 22,34% hlut. 

Stoðir er stærsti eigandi Ása, en á eftir Stoðum er LSR með 11,2% hlut og Brú lífeyrissjóður með 10,45%.

Gengi bréfa Ása hefur hækkað um 6,42% í viðskiptum í dag og er nú 11,6 krónur á hlut. Markaðsvirði bréfanna sem keypt voru í gær er því núna um 870 milljónir.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅