Blush opnar nýja verslun í Kringlunni
Það verður rífandi stemning í Kringlunni í dag því þá opnar Blush opnar tímabundna verslun á fyrstu hæð Kringlunnar. Opnunin markar tímamót hjá fyrirtækinu sem fagnar 15 ára afmæli á árinu.
„Við erum ótrúlega spennt fyrir því að fá tækifæri til að opna Blush í Kringlunni. Frá upphafi höfum við lagt áherslu á að stuðla að heilbrigðu viðhorfi til kynlífs og opna umræðuna um kynheilsu og kynheilbrigði,“ segir Gerður Arinbjarnar, eigandi Blush í fréttatilkynningu.
Gerður Huld Arinbjarnardóttir eigandi Blush fyrir framan kirsuberjatréð fræga í verslun Blush við Dalveg. mbl.is/Árni Sæberg
Í versluninni verður boðið upp á úrval af vinsælustu vörum Blush, þar á meðal kynlífstæki, sleipiefni og aðrar vörur tengdar kynheilsu og vellíðan. Með opnuninni vill fyrirtækið færa vöruframboð sitt nær viðskiptavinum og stuðla að opnari umræðu um kynheilsu.
Gjafir og tilboð í tilefni opnunarinnar
Opnuninni verður fagnað með sérstökum tilboðum frá klukkan 18 til miðnættis. Boðið verður upp á 10% afslátt af öllum vörum og fyrstu 30 viðskiptavinirnir sem versla fyrir 30 þúsund krónur eða meira fá kynlífstækið Klitty að gjöf.
Þá geta þeir sem versla fyrir fimm þúsund krónur eða meira freistað gæfunnar í svokölluðu unaðshjóli þar sem allir hljóta vinning. Gestum verður einnig boðið að spreyta sig í kúluvél og næla sér í vinninga.
Unnur María Pálmadóttir markaðsstjóri Kringlunnar fagnar komu Blush og segir verslunina kærkomna viðbót við fjölbreytta verslunarflóru Kringlunnar.
„Það er líka ánægjulegt að sjá hvernig umræðan um kynheilsu og vellíðan er orðin opnari og jákvæðari á undanförnum árum og við erum því afar stolt af því að fá Blush til okkar í Kringluna,“ segir Unnur María.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
