Beckham að kaupa United?
Paul Scholes, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur lýst yfir stuðningi við þá hugmynd að David Beckham fari fyrir hópi fjárfesta sem kaupi enska knattspyrnufélagið.
„Ég sé ekki af hverju ekki,“ sagði Scholes í hlaðvarpinu The Good, The Bad and The Football þegar hann var spurður út í hugmyndina.
„Þessir eigendur hafa ekki staðið sig, og ég veit að Jim Ratcliffe hefur aðeins verið þarna í tvö og hálft ár, en þetta hefur bara ekki gengið hingað til, er það nokkuð?“
„Við vitum öll hvert viðhorfið innan félagsins er til Glazer-fjölskyldunnar, þannig að ég væri opinn fyrir hverjum sem er.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗