Bein atlaga að ferðaþjónustunni

Því er spáð að bílaleigur muni finna ærlega fyrir hækkun kílómetragjaldsins sem hækka á um nálega 16% um næstu áramót. mbl.is/Eggert

„Ríkisstjórnin er að flækja regluverkið og það er ástæða fyrir því að aðrar þjóðir hafa verið að heykjast á að leggja á kílómetragjald, vegna þess að bæði almenningur og fyrirtæki finna fyrir gríðarlegri hækkun útgjalda vegna gjaldsins,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið.

Hann bendir á að í tilviki bílaleigna beri þær óskipta ábyrgð á innheimtu gjaldsins, fyrir hönd ríkisins, af viðskiptavinum sínum. Þannig séu færslugjöld sem greidd eru kortafyrirtækjunum áætluð 25 milljónir króna á ári í tilviki bílaleigunnar Hölds. Þá segir hann reynslu fyrirtækisins, þegar kemur að innheimtu kílómetragjalds af leigutökum tvinn- og rafbíla, sýna að aðeins 70-90% gjaldsins innheimtist og falli því að lágmarki 140 milljónir á fyrirtækið sjálft. Beinn kostnaður þessa eina fyrirtækis vegna kílómetragjaldsins sé því áætlaður um 165 milljónir.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅