Björk Guðmundsdóttir á von á barni
Björk Guðmundsdóttir og Rúnar Áki Emilsson eiga von á sínu fyrsta barni saman í maí. Samsett mynd/Instagram
Spennandi tímar eru fram undan hjá leikkonunni og handritshöfundinum Björk Guðmundsdóttur og kærasta hennar, körfuboltaþjálfaranum og Skagfirðingnum Rúnari Áka Emilssyni, en þau eiga von á sínu fyrsta barni saman.
Björk og Rúnar hafa verið par síðan í júlí 2025, samkvæmt upplýsingum á Facebook, og nú er lítill fjölskyldumeðlimur væntanlegur í maí.
Parið færði fylgjendum sínum gleðifregnirnar á Instagram með fallegri færslu þar sem sjá má sónarmynd af ófædda barninu.
„Lítið kraftaverkabarn á leiðinni sem verður fullbakað í maí❤️ Litla regnbogabarnið okkar, þú ert svo innilega velkomið 🌈,“ skrifuðu þau við myndina.
Smartland óskar Björk og Rúnari innilega til hamingju með væntanlega fjölgun í fjölskyldunni!
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗