Drykkur Birgittu Lífar keppir um alþjóðleg verðlaun

Birgitta Líf Björnsdóttir segir ánægjulegt að UPP sé komið á úrslitalista alþjóðlegra nýsköpunarverðlauna. Ljósmynd/Róbert Arnar

UPP, nýr íslenskur prótíndrykkur, hefur verið valinn á úrslitalista World Beverage Innovation Awards 2026, alþjóðlegra nýsköpunarverðlauna í drykkjarvöruheiminum. Drykkurinn er tilnefndur í flokki virknidrykkja (e. Best Functional Beverage) og verða úrslitin tilkynnt 10. nóvember á BrauBeviale í Nürnberg í Þýskalandi. 

UPP kom á markað hérlendis í sumar eftir umfangsmikið þróunarferli, en Ölgerðin og World Class standa að baki drykknum í samstarfi við Brandenburg. Markmiðið var að þróa hágæða prótíndrykk sem bryti upp hefðbundnar hugmyndir um slíka drykki og byði upp á ferskari og frískandi leið til að bæta prótíni inn í daginn.

Aðeins nokkrum mánuðum síðar hefur UPP vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi.

„Gaman að sjá góðar viðtökur“

„Okkur hjá World Class fannst spennandi að taka þátt í að þróa prótíndrykk sem höfðar til mun breiðari hóps en þeirra sem stunda líkamsrækt. Prótín eru mikilvæg fyrir okkur öll og við vildum bjóða upp á einfaldan, ferskan og bragðgóðan valkost sem passar inn í daglegt líf fólks. Það er sérstaklega gaman að sjá hvað UPP hefur fengið góðar viðtökur og nú þessa alþjóðlegu viðurkenningu,“ segir Birgitta Líf Björnsdóttir hjá World Class.

Birgitta Líf segir markmiðið hafa verið að þróa prótíndrykk sem höfðaði til breiðari hóps en þeirra sem stunda líkamsrækt. Ljósmynd/Róbert Arnar

„Það er afar ánægjulegt að sjá UPP hljóta þessa alþjóðlegu viðurkenningu svo skömmu eftir markaðssetningu. Verkefnið sýnir hverju hægt er að áorka þegar öflugir samstarfsaðilar sameinast um skýra sýn og metnaðarfull markmið. Að vera valin á úrslitalista meðal alþjóðlegra stórfyrirtækja er mikil viðurkenning fyrir íslenska nýsköpun og gefur okkur enn meiri kraft til framtíðar,“ segir Guðni Þór Sigurjónsson, viðskiptaþróunarstjóri hjá Ölgerðinni.

Birgitta Líf Björnsdóttir ásamt samstarfsfólki hjá World Class. Á myndinni eru Ívar Guðmundsson, Elías Uche, Katrín Edda Þorsteinsdóttir, Halldór Karlsson, Benedikt Karlsson, Birgitta Líf og Kristjana Steingrímsdóttir. Ljósmynd/Róbert Arnar

Prótín í ferskari búningi

UPP inniheldur 20 grömm af prótíni í hverri dós og 80 hitaeiningar. Drykkurinn er án sykurs, kolvetna og koffíns og mælist laktósalaus.

Sérstaða UPP felst meðal annars í prótínblöndunni, þar sem Lacprodan® BLG-100 mysuprótín er sameinað kollagenpeptíðum. Mysuprótínið er sérstaklega ríkt af nauðsynlegum amínósýrum, meðal annars levsíni, sem gegnir mikilvægu hlutverki við nýmyndun vöðvaprótína. 

Í hópi alþjóðlegra nýjunga

World Beverage Innovation Awards eru haldin á vegum FoodBev Media, alþjóðlegs fjölmiðlafyrirtækis sem sérhæfir sig í matvæla- og drykkjarvörumarkaðnum. Verðlaunin eru nú veitt í 23. sinn og beina sjónum að nýsköpun og vöruþróun á alþjóðlegum vettvangi.

Úrslitin verða kynnt á BrauBeviale, einni af leiðandi alþjóðlegum fagkaupstefnum drykkjarvöruheimsins, þar sem framleiðendur og sérfræðingar koma saman til að kynna nýjungar og framtíðarlausnir.

Hvort UPP hreppir verðlaunin kemur í ljós 10. nóvember, en tilnefningin ein og sér er ánægjuleg viðurkenning fyrir íslenska nýsköpun. 

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅