Musk gerir grín að ósigri repúblikana

Elon Musk lagði tæplega hálfan milljarð dollara til pólitískra verkefna repúblikana. AFP

Milljarðamæringurinn Elon Musk gerir grín að ósigri repúblikana í bandarísku þingkosningunum eftir að hafa varið hundruðum milljóna dollara til að styðja flokkinn.

Demókratar náðu yfirráðum yfir Bandaríkjaþingi með því að tryggja sér meirihluta bæði í öldungadeildinni og fulltrúadeildinni. Niðurstaðan var afgerandi höfnun kjósenda á pólitískri stefnu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.

„Ætli kosningatruflandi geimleisararnir mínir hafi ekki virkað í þetta sinn,“ skrifaði Musk á samfélagsmiðilinn X.

Samkvæmt upplýsingum frá OpenSecrets, sem fylgist með fjármögnun kosningabaráttu, lagði Musk tæplega hálfan milljarð dollara til pólitískra verkefna repúblikana. Þar með varð hann stærsti einstaki fjárhagslegi bakhjarlinn í einni kosningalotu til alríkisembætta frá því að takmarkanir á kosningafjárframlögum voru afnumdar árið 2010.

Stærstur hluti fjárframlaga hans rann til America PAC, samtaka sem hallast að repúblikönum, auk þess sem hann styrkti einnig Republican Senate Leadership Fund, svokölluð ofurkjörnefndarsamtök sem styðja frambjóðendur flokksins til öldungadeildarinnar.

Í september nýtti SLF 158 milljónir dala af framlögum Musks til að styðja Ken Paxton, frambjóðanda repúblikana til öldungadeildarinnar í Texas.

Demókratinn James Talarico sigraði Paxton, náinn bandamann Trumps, og varð þar með fyrsti demókratinn til að vinna kosningu til embættis á landsvísu í Texas síðan 1994.

Guess my election-interfering space lasers didn’t work this time 🤷‍♂️

— Elon Musk (@elonmusk) November 4, 2026

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅