Sigurinn ýtir undir vangaveltur um forsetaframboð
Jon Ossoff gæti boðið sig fram til forseta Bandaríkjanna. Hann hefur þó hingað til sagst ekki hafa áhuga á því. AFP
Endurkjör Jons Ossoff í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Georgíu þykir styrkja stöðu hans innan Demókrataflokksins tveimur árum fyrir næstu forsetakosningar.
Ossoff, sem er 39 ára, hefur sagst hafa „engan áhuga á að bjóða sig fram til forseta“ en sumir stuðningsmanna hans vonast til að honum snúist hugur.
Ossoff hafði betur gegn repúblikananum Mike Collins og demókratar halda þar með öldungadeildarsæti í ríki sem Donald Trump vann í forsetakosningunum árið 2024.
Sigurinn fól í sér fyrstu góðu tíðindi kosninganæturinnar fyrir demókrata.
Hafnað siðleysi og vanhæfni
Í sigurræðu sinni í Atlanta, höfuðborg Georgíu, sagði Ossoff kjósendur hafa hafnað því sem hann kallaði „siðleysi, spillingu og vanhæfni“ Trumps. Hann sagði forsetann hafa brugðist og völd hans fara þverrandi.
„Í kvöld höfum við greitt nauðsynlegt og óumdeilanlegt högg í þágu réttlætis og framfara,“ sagði hann við stuðningsmenn sína sem fögnuðu um leið.
Gracie Surface, 26 ára hjúkrunarfræðingur, er meðal þeirra sem vilja sjá Ossoff í forsetaframboði árið 2028.
„Við þurfum á honum að halda. Við þurfum ferskt blóð,“ sagði hún við fréttamann AFP eftir að hafa greitt atkvæði í Atlanta.
Sagði Trump ekki vilja sinna starfinu
Ossoff hefur vakið athygli í kosningabaráttunni fyrir framkomu sína í ræðustól. Hann kemur gjarnan fram með uppbrettar skyrtuermar og þykir minna á Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem tók þátt í kosningabaráttunni með honum.
Í ræðum sínum hefur Ossoff gagnrýnt meinta spillingu í stjórn Trumps og iðulega gert gys að forsetanum sjálfum. Ummæli hans í sumar um Natalie Harp, 35 ára aðstoðarkonu Trumps sem er sjaldan langt undan þegar hann kemur fram, vöktu sérstaka athygli.
„Forsetinn sefur á fundum sínum. Hann spilar golf og stundar hlutabréfaviðskipti. Hann vill ekki sinna starfinu,“ sagði Ossoff á kosningafundi í Atlanta í ágúst.
„Hann vill byggja danssalinn sinn og ferðast með Natalie í fljúgandi höllinni þeirra, sem virðist varnarlaus og var gjöf frá emírnum af Katar,“ bætti hann við.
Ummælin fóru víða á samfélagsmiðlum og reittu Trump og samstarfsmenn hans til reiði. Trump kallaði Ossoff „tvífara Pee-wee Hermans“ en Steven Cheung, samskiptastjóri Hvíta hússins, kallaði hann „mesta cuck-lúserinn í pólitíkinni“. Enska orðið „cuck“ er notað í niðrandi merkingu um karlmann sem talinn er undirgefinn.
„Þegar hann talar hugsa ég um Barack Obama“
Stuðningsmenn Ossoffs sem AFP ræddi við nefna einlægni hans og hæfileika til að höfða til fólks þvert á flokkslínur. Catherine Urbain, sem starfar í heilbrigðisgeiranum, sagði hann sýna „einkenni sanns leiðtoga“.
„Þegar hann talar hugsa ég um Barack Obama,“ sagði Mary, sjálfboðaliði á sjötugsaldri sem gekk hús úr húsi í kosningabaráttunni. Hún gaf ekki upp eftirnafn sitt. „Ég held að það sé vegna þess að hann sýnir samkennd. Hann er ekta.“
Obama, fyrsti svarti forseti Bandaríkjanna, nýtur enn mikilla vinsælda meðal demókrata. New York Times hafði líkt þeim Ossoff saman áður en Obama kom fram á kosningafundum honum til stuðnings. Jan Callum, 77 ára kennari á eftirlaunum, segir Ossoff „afar vel máli farinn“ en telur þó erfitt að bera þá tvo saman.
Urbain minntist þess þegar Ossoff steig á svið á kosningafundi Kamölu Harris, þáverandi forsetaframbjóðanda demókrata, fyrir tveimur árum. Þá sagðist hún hafa hugsað með sér: „Þessi maður er stórkostlegur. Hann á eftir að verða forseti.“
„Mér finnst hann einlægur, honum er annt um fólk en hann er heldur ekki hræddur við að standa uppi í hárinu á öðrum,“ sagði Urbain. „Mér finnst hann vera einn af fáum sem láta Trump ekki komast upp með neitt.“
Yngstur í öldungadeildinni
Ossoff var 33 ára þegar hann felldi repúblikanann David Perdue í síðari umferð öldungadeildarkosninganna í Georgíu í janúar 2021. Þegar hann tók sæti á þingi varð hann yngstur þingmanna öldungadeildarinnar.
Á yngri árum var Ossoff í starfsnámi hjá þingmanninum og mannréttindafrömuðinum John Lewis. Síðar varð hann aðstoðarmaður þingmannsins Hanks Johnson.
Áður en Ossoff bauð sig sjálfur fram til þings stýrði hann fyrirtæki sem framleiddi heimildarmyndir, meðal annars um spillingu og mannréttindabrot.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

