Samantekt: Demókratar í sjöunda himni

Demókratar náðu völdum á Bandaríkjaþingi í þingkosningunum í landinu eftir að hafa tryggt sér meirihluta bæði í öldungadeildinni og fulltrúadeildinni.

Samkvæmt nýjustu tölum hafa demókratar náð 54 sætum í öldungadeildinni á móti 44 sætum repúblikana. Í fulltrúadeildinni hafa demókratar náð 228 sætum á móti 139 sætum repúblikana.

Stórsigur demókrata mun veita stjórnarandstöðunni vald til að stöðva lagafrumvörp, hefja víðtækar rannsóknir á stjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og koma í veg fyrir skipanir hans í dómaraembætti og æðstu stöður hjá hinu opinbera.

Trump Bandaríkjaforseti.

Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Úrslitin endurspegla mikla reiði vegna framfærslukostnaðar, tolla og stríðs Trumps gegn Íran, sem hefur valdið því að eldsneytisverð hefur rokið upp og aukið óánægju með forseta sem var þegar afar óvinsæll.

„Ég er bara svo glaður. Ég er svo spenntur,“ sagði Michael Diaz, 22 ára aðstoðarmaður lögfræðings í Georgíu, sem fagnaði stórsigri Jons Ossoffs, rísandi stjörnu demókrata, í öldungadeildinni.

Trump segist reiðubúinn að sætta sig við úrslit þingkosninganna og vinna með demókrötum þrátt fyrir að hafa áður dregið úrslit kosninga í efa. Hann sagði við The New York Times að hann væri „algjörlega reiðubúinn“ að viðurkenna úrslitin.

„Ég held að demókratar hafi staðið sig vel, ég meina það í alvöru,“ sagði hinn áttræði forseti við Fox News og hrósaði pólitískum andstæðingum sínum, sem er sjaldgæft. „Þeir börðust hart.“

En hann reyndi að fjarlægja sig slæmu gengi eigin flokks og bætti við: „Ég lít ekki á þetta sem högg fyrir mig.“

Hann viðurkenndi að átökin við Íran hefðu átt þátt í ósigrinum en varði þó hernaðinn og gaf í skyn að flokkarnir gætu fundið sameiginlegan flöt í innflytjendamálum, sem lengi hafa verið eitt umdeildasta málefni forsetatíðar hans.

Höfuðvígi repúblikana

Demókratar unnu sæti í kosningunum sem repúblikanar höfðu lengi haldið innan sinna raða og náðu tímamótaárangri í Suður-Karólínu, Norður-Karólínu, Iowa, Kansas, Ohio, Texas og Maine.

Í Maine sigraði fyrrverandi skógarhöggsmaðurinn Troy Jackson repúblikanann Susan Collins, sem lengi hefur setið í öldungadeildinni, og var það sjöunda öldungadeildarsætið sem flokkurinn vann af repúblikönum.

Í Kansas varð meþódistapresturinn Adam Hamilton fyrsti demókratinn sem kjörinn er í öldungadeildina frá þessu íhaldssama ríki síðan 1932. Iowa hafði ekki kosið öldungadeildarþingmann úr röðum demókrata síðan 2008.

Adam Hamilton ásamt eiginkonu sinni LaVon Bandy.

Adam Hamilton ásamt eiginkonu sinni LaVon Bandy. AFP/Austin Johnson

Demókratinn James Talarico í Texas lýsti því yfir að hann hefði sigrað „Golíat“ þegar hann vann sæti í öldungadeildinni á meðan Gina Hinojosa felldi ríkisstjóra repúblikana, Greg Abbott, og batt þar með enda á áratugalanga stjórn repúblikana.

Demókratar vörðu einnig mikilvæg eigin sæti í öldungadeildinni, þar á meðal sæti Ossoffs í Georgíu og opið sæti í New Hampshire.

Sigurinn varð enn stærri þegar Abdul El-Sayed sigraði fyrrverandi þingmann repúblikana, Mike Rogers, í Michigan og varð þar með fyrsti múslíminn sem kjörinn er í efri deild Bandaríkjaþings.

„Michigan, okkur tókst það!“ sagði El-Sayed í ræðu í kosningamiðstöð sinni í Detroit.

El-Sayed sigraði þrátt fyrir óvænt útspil á lokametrum kosningabaráttunnar þegar þingkonan Haley Stevens, sem tapaði fyrir El-Sayed í forvali demókrata, lýsti yfir stuðningi við Rogers á síðustu stundu.

Sigur flokksins í fulltrúadeildinni fól í sér ávinning í Pennsylvaníu, Kentucky, Arizona, Norður-Karólínu, Wisconsin og New Jersey, þar á meðal í kjördæmum sem Trump vann örugglega árið 2024.

Í einu kjördæmi sem fylgst var grannt með sem vísbendingu felldi demókratinn J.D. Ford þingkonu repúblikana, Victoriu Spartz, í Indiana og vann kjördæmi sem Trump hafði unnið með 17 prósentustiga mun tveimur árum fyrr.

Demókratar unnu einnig ríkisstjóraembættið í Georgíu þar sem Keisha Lance Bottoms, fyrrverandi borgarstjóri Atlanta, var kjörin fyrsti svarti kvenríkisstjórinn í sögu Bandaríkjanna.

Repúblikanar fengu einhverja sárabót í Flórída, þar sem Byron Donalds, sem naut stuðnings Trumps, varð fyrsti svarti ríkisstjóri ríkisins og Ashley Moody hélt sæti sínu í öldungadeildinni – en aðeins eftir að hafa staðist óvænta en harða atlögu demókrata.

Nóttin var „mikið afhroð og afgerandi höfnun á Donald Trump og stefnu hans,“ sagði Todd Belt, prófessor við George Washington-háskóla, við AFP.

Byron Donalds.

Byron Donalds. AFP/Octavio Jones

Trump í vörn 

Yfirráð demókrata á þinginu gera flokknum kleift að hefja rannsóknir á Íransstríðinu, framfylgd innflytjendalaga og ásökunum um spillingu, auk þess að stöðva stefnumál Trumps og skipanir hans í æðstu embætti.

Demókratinn Robert Garcia, sem nú er búist við að muni leiða hina valdamiklu eftirlitsnefnd fulltrúadeildarinnar, varaði repúblikana við á samfélagsmiðlum: „FÁIÐ YKKUR LÖGFRÆÐING.“

Hakeem Jeffries, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, lýsti því yfir að MAGA-hreyfing Trumps væri á flótta.

Jeffries gæti orðið fyrsti svarti forseti fulltrúadeildarinnar þegar nýtt þing kemur saman í janúar.

Hakeem Jeffries.

Hakeem Jeffries. AFP/Alex Wong

Þrátt fyrir sáttatóninn fullyrti Trump einnig á samfélagsmiðlum að repúblikanar hefðu unnið „MEÐ YFIRBURÐUM“ ef hann hefði sjálfur verið í framboði, þótt hann hefði ítrekað hvatt stuðningsmenn sína í kosningabaráttunni til að „láta eins og ég sé á kjörseðlinum“.

Hann ítrekaði einnig hótun sína um að beita neitunarvaldi forseta gegn lögum sem demókratar samþykkja og birti á samfélagsmiðlum mynd af rauðri derhúfu sem á stóð einfaldlega: „NEITUNARVALD“.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅