Nota frekar olíu en rafmagn í bræðsluna

Fiskimjölsverksmiðja Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum.

Fiskimjölsverksmiðja Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/VSV/Halldór Ben. Halldórsson

Hátt verð á raforku veldur því að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum keyrir fiskimjölsverksmiðju sína frekar á olíu.

Verksmiðjan brennir 18 til 25 þúsund lítrum á sólarhring þegar vinnsla stendur yfir.

„Olían er mjög há þessa dagana en samt er hún umtalsvert ódýrari heldur en rafmagn fyrir verksmiðjuna,“ segir Unnar Hólm Ólafsson verksmiðjustjóri á vef VSV.

Hann segir að rafmagn hafi ekki verið nýtt til orkuframleiðslu verksmiðjunnar frá því að nýr sæstrengur kom til Vestmannaeyja fyrr á árinu.

„Hann vonast til að aðstæður breytist en sér ekki merki um það eins og staðan er nú,“ segir á vef VSV.

Hægt er að horfa á viðtal Halldórs Ben. Halldórssonar við Unnar sem birt var á vef VSV hér fyrir neðan.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅