Skellur fyrir Dag Sigurðsson
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í króatíska landsliðinu í handbolta verða án Luka Lovre Klarica er liðið leikur við Litháen í undankeppni EM 2028 í Split í dag.
Klarica, sem leikur með Kielce í Póllandi, er lykilmaður fyrir króatíska liðið og er fjarvera hans því skellur fyrir íslenska þjálfarann.
David Mandić og Matko Moslavac missa einnig af verkefninu og hafa þeir Berislav Tokić og Petar Šprem verið kallaðir inn í hópinn í þeirra stað.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗