Fyrsti músliminn í öldungadeildinni
Demókratinn Abdul El-Sayed sigraði fyrrverandi þingmann Repúblikanaflokksins, Mike Rogers, í kosningu um sæti Michigan í öldungadeild Bandaríkjaþings og verður hann þar með fyrsti múslíminn sem kjörinn er í efri deild þingsins.
„Michigan, okkur tókst það!“ sagði El-Sayed í ræðu að viðstöddum hundruðum stuðningsmanna sem öskruðu og föðmuðust í kosningamiðstöð hans í Detroit.
"MICHIGAN, WE DID IT!" Abdul El-Sayed celebrates his projected U.S. Senate victory in Michigan, telling supporters he is “so proud and honored” to stand before them as senator-elect. El-Sayed, who repeatedly used the phrase “inshallah,” meaning “God willing,” throughout the campaign, reflects on his victory. Tune in to Fox News Channel now for live midterm election coverage. https://t.co/T1AlfixOkv
— Fox News (@FoxNews) November 4, 2026
„Ég er afar stoltur og það er mér mikill heiður að standa hér sem nýkjörinn öldungadeildarþingmaður ykkar fyrir hið mikla ríki Michigan.“
El-Sayed sigraði þrátt fyrir óvænt útspil á lokametrum kosningabaráttunnar þegar þingkonan Haley Stevens, sem tapaði fyrir El-Sayed í forkosningum demókrata, lýsti á síðustu stundu yfir stuðningi við Rogers.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗