Davíð í Kaleo og Bryndís ástfangin í baðlóni

Davíð Antonsson Crivello og Bryndís Thelma Jónsdóttir mættu á afmælishátíðina.

Davíð Antonsson Crivello og Bryndís Thelma Jónsdóttir mættu á afmælishátíðina. Ljósmynd/Aðsend

Baðlónið Laugarás Lagoon varð eins árs í október. Vegleg dagskrá fór fram í um miðjan október þar sem gestir og starfsfólk lónsins fagnaði saman. Á meðal þeirra sem nutu þess sem baðlónið hafði upp á að bjóða voru hjónin Davíð Antonsson Crivello í Kaleo og Bryndís Thelma Jónsdóttir vörumerkjastjóri.

Fögnuðurinn hófst á föstudeginum með fordrykkjum og smáréttum. Þegar kvölda tók var það DJ Young Gaudi sem sá um tónlistina við lónið, þar sem gestir nutu heita vatnsins í haustloftinu.

Laugardagsmorguninn var helgaður vellíðan undir leiðsögn Þóru Hrundar frá Munum. Hún leiddi afmælisgusu þar sem gestir nutu sauna hitans, drykkja og léttra veitinga á milli umferða. Að lokinni stund í lóninu beið brönsplatti á veitingastaðnum Ylju að hætti Gísla Matt og teymis hans, auk þess sem þátttakendur fengu gjafapoka í tilefni dagsins.

Myndlistin fékk einnig sitt pláss í afmælisfögnuðinum. Sigmundur Páll Freysteinsson tók á móti gestum á sýningu sinni, Farvegir, og spjallaði við þá um verkin. Síðar um daginn tóku Hróðmar Sigurðsson og Birgir Steinn Theodórsson við og léku lifandi djass á Ylju.

Á sunnudagsmorgni gafst aftur tækifæri til að hefja daginn á saunagusu, lóni og brönsi. Alla helgina fylgdi fordrykkur með brönsplöttunum á Ylju og matargestir gátu valið sér afmælisköku í eftirrétt.

Á fyrsta starfsárinu náði Laugarás Lagoon þeim áfanga að taka á móti tæplega 150 þúsund gestum. Afmælishelgin var því kærkomið tækifæri til að þakka fyrir viðtökurnar og fagna með fólkinu sem hefur verið hluti af þessu fyrsta ári.

Anna Sigurðardóttir og Þórunn Arnardóttir.

Anna Sigurðardóttir og Þórunn Arnardóttir. Ljósmynd/Aðsend

Elina, Meguru og Hildur Sigríður.

Elina, Meguru og Hildur Sigríður. Ljósmynd/Aðsend

Anna Sigurðardóttir, Simon og Bryndís Björnsdóttir framkvæmdastjóri Laugarás Lagoon.

Anna Sigurðardóttir, Simon og Bryndís Björnsdóttir framkvæmdastjóri Laugarás Lagoon. Ljósmynd/Aðsend

Gestir baðlónsins voru ánægðir með drykkina sína.

Gestir baðlónsins voru ánægðir með drykkina sína. Ljósmynd/Aðsend

Hlín Arngrímsdóttir og Þórunn Arnardóttir.

Hlín Arngrímsdóttir og Þórunn Arnardóttir. Ljósmynd/Aðsend

Það var mikið fjör alla helgina.

Það var mikið fjör alla helgina. Ljósmynd/Aðsend

Gestir baðlónsins brostu hringinn.

Gestir baðlónsins brostu hringinn. Ljósmynd/Aðsend

Ljósmynd/Aðsend

Afmæli Laugarás Lagoon

Afmæli Laugarás Lagoon

Afmæli Laugarás Lagoon

Afmæli Laugarás Lagoon Ljósmynd/Aðsend

Þóra Hrund frá Munum stjórnaði gusu.

Þóra Hrund frá Munum stjórnaði gusu.

Myndlistarmaðurinn Sigmundur Páll Freysteinsson sýndi verk sín.

Myndlistarmaðurinn Sigmundur Páll Freysteinsson sýndi verk sín. Ljósmynd/Aðsend

Ljósmynd/Aðsend

Laugarás Lagoon er eins árs.

Laugarás Lagoon er eins árs. Ljósmynd/Aðsend

Ljósmynd/Aðsend

Ljósmynd/Aðsend

Ljósmynd/Aðsend

Martin Cabejšek drykkjarstjóri Laugarás Lagoon blandaði drykki fyrir gesti.

Martin Cabejšek drykkjarstjóri Laugarás Lagoon blandaði drykki fyrir gesti. Ljósmynd/Aðsend

Ljósmynd/Aðsend

Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅