Segir Bandaríkjamenn hafa sagt „nei við stríði“

Aðalsamningamaður Írans, Mohammad Bagher Ghalibaf.

Aðalsamningamaður Írans, Mohammad Bagher Ghalibaf. AFP

Mohammad Bagher Ghalibaf, aðalsamningamaður Írans í viðræðum við Bandaríkin, segir að Bandaríkjamenn hafi kosið nei við stríði eftir stórsigur demókrata á repúblikönum í bandarísku þingkosningunum.

Kosningarnar endurspegluðu djúpstæða reiði vegna framfærslukostnaðar, tolla og stríðs Trumps gegn Íran, sem hefur valdið því að eldsneytisverð hefur rokið upp og aukið enn á óánægju með forseta sem var þegar afar óvinsæll.

„Hvort sem það var samviskan eða framfærslukostnaðurinn sögðu Bandaríkjamenn NEI VIÐ STRÍÐI, og við tökum undir þessi skilaboð,“ skrifaði Ghalibaf á X.

„Ef bandarísk stjórnvöld svíkja vilja almennings til að þjóna alþjóðlegum fjármögnurum og fjárkúgurum munu þau komast að því að NEI-inu okkar fylgir martröð,“ bætti hann við.

Stríðið, sem hófst með árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í febrúar, hefur verið í pattstöðu mánuðum saman, rofinni af stöku skotbardögum, og óttast er að átök hefjist á ný af fullum þunga.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅