Náði kjöri eftir „viðbjóðslega auglýsingu“
Demókratinn Amy Acton hefur verið kjörin ríkisstjóri Ohio, samkvæmt spám bandarískra sjónvarpsstöðva.
Hún hefur betur gegn milljarðamæringnum Vivek Ramaswamy, frambjóðanda repúblikana, eftir óvægna kosningabaráttu þar sem auglýsing um æsku Acton vakti hörð viðbrögð.
Í auglýsingunni kom fram móðir Acton, sem hún hefur ekki hitt frá árinu 1978. Eiginmaður móðurinnar var ákærður fyrir að hafa nauðgað Acton þegar hún var barn en flúði áður en hægt var að rétta yfir honum. Hann er nú látinn.
„Þetta hlýtur að vera ein viðbjóðslegasta auglýsing sem ég hef séð,“ sagði sjónvarpsfréttamaðurinn Anderson Cooper um auglýsinguna í október.
Bæði Trump og Vance studdu Ramaswamy
Acton er sextugur læknir sem stýrði heilbrigðisráðuneyti Ohio á fyrstu mánuðum kórónuveirufaraldursins.
Hún tekur við af repúblikananum Mike DeWine, sem gat ekki boðið sig fram til endurkjörs vegna takmarkana á fjölda kjörtímabila.
Ramaswamy, sem er 41 árs, sóttist eftir útnefningu repúblikana til forsetaframboðs fyrir kosningarnar 2024. Nú naut hann stuðnings Trumps, sem hélt áfram að styðja hann þrátt fyrir gagnrýni á auglýsinguna og sakaði fjölmiðla um samræmda atlögu að framboði hans.
JD Vance varaforseti varði einnig Ramaswamy, sem hann kallaði „góðan vin“ sinn, á kosningaferðalagi í Ohio. DeWine var aftur á móti meðal þeirra repúblikana sem tóku undir gagnrýni demókrata á auglýsinguna.
Ríkið hefur færst til repúblikana á undanförnum árum eftir að hafa lengi verið eitt helsta sveifluríki Bandaríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti vann Ohio til að mynda með yfir tíu prósentustiga mun í forsetakosningunum árið 2024.
Demókratar unnu þó einnig sæti Ohio í öldungadeildinni í kosningunum nú.
Segist hafa þolað ofbeldi og vanrækslu
Í auglýsingu framboðs Ramaswamy sagði Donna Arthur, móðir Acton, að dóttir sín hefði „logið allt sitt líf“ og ætti ekki að fá að verða ríkisstjóri.
Acton sendi frá sér yfirlýsingu í síðasta mánuði þar sem hún sagði að hún og bróðir hennar hefðu „mátt þola ofbeldi, hungur og vanrækslu“ í æsku.
„Frá tíu til tólf ára aldurs var ég beitt kynferðisofbeldi af eiginmanni hennar, á meðan líffræðileg móðir mín gerði ekkert til að vernda mig,“ sagði Acton.
Hún sagðist ekki hafa hitt móður sína síðan árið 1978 og bætti við að það væri „sorglegt að sjá Vivek Ramaswamy misnota hana í eigin pólitíska þágu“.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗