Sérsveit RLS á einkabíl í útköllum
Samskiptastjóri ríkislögreglustjóra segir brýna þörf á að efla bílaflota sérsveitarinnar. mbl.isÁrni Sæberg
Sérsveit ríkislögreglustjóra (RLS) hefur í einhverjum tilfellum þurft að notast við einkabíla lögreglumanna til að sinna bæði sérhæfðum verkefnum og æfingum.
Hafa þeir sl. 12 mánuði farið í tvö sérhæfð verkefni á einkabíl, tengdist annað þeirra aðgerð gegn skipulagðri glæpastarfsemi, og tvisvar á einkabíl til æfingar. Þá hefur sérsveitin tekið í notkun bifreið sem framleidd var á síðustu öld og geymd var á minjasafni lögreglu.
Samskiptastjóri RLS segir brýna þörf á að efla bílaflota sérsveitar, þeir séu komnir til ára sinna.
Nánar má lesa um málið á bls.4 í Morgunblaðinu í dag
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗