„Við sigruðum Golíat“
„Við sigruðum Golíat,“ segir demókratinn James Talarico eftir sigur sinn í öldungadeildarkosningunum í Texas.
Hann hafði betur gegn Ken Paxton, dómsmálaráðherra ríkisins, sem naut stuðnings Donalds Trump Bandaríkjaforseta og tækniauðjöfursins Elons Musk.
„Í þessari kosningabaráttu áttum við við okkar eigin Golíata að etja. Ríkasta mann heims, valdamesta mann heims og allt valdakerfið í Washington,“ sagði Talarico við stuðningsmenn sína við mikinn fögnuð í Austin, höfuðborg Texas, nú fyrir stundu.
Vísaði hann þar til þess mikla fjárhagslega og pólitíska stuðningi sem Paxton naut, en Musk lagði miklar fjárhæðir í baráttuna fyrir kjöri hans eins og fjallað var um í nótt.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗