Er að venjast andlitinu eftir þyngdartap
Leikarinn John Goodman er enn að venjast andlit sínu eftir mikið þyngdartap. Goodman sem er 74 ára léttist um 80 kíló nýlega og er að reyna venjast nýjum veruleika.
„Ég er enn að reyna að venjast andlitinu á mér,“ sagði Goodman í hlaðvarpsþætti að því fram kemur á vef E!. „Það er skrýtið. Ég hugsa um sjálfan mig á einn hátt en horfi svo á mig, ó vá.“
Leikaranum finnst þó ekki leiðinlegt að venjast þessum nýja líkama. „Þetta er skrýtið. Það er skemmtilegt að venjast þessu. Það er ýmislegt sem ég þarf að venjast.“
Hætti að drekka og byrjaði að borða
Goodman er þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Roseanne og The Big Lebowsky. Hann leitað í mat eftir að hann hætti að drekka árið 2007. Hann varð þyngstur um 181 kíló.
„Ég léttist um 27 kíló yfir sumarið og bætti þeim öllum á mig aftur. Svo voru það 32 kíló, 36 kíló. Þetta varð þreytandi,“ segir hann. „Eftir að ég hætti að drekka borðaði ég eins og ég hafði drukkið,“ útskýrði Goodman nýlega.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/58/20/1582045.jpg)