Andrea bjargaði kvöldinu með viskíi

Andrea Gunnarsdóttir nýtti það sem til var í eldhúsinu og útbjó viskílagaða piparostasósu með brúnuðu smjöri sem lyfti kjötbollunum á annað stig. Samsett mynd/Aðsend

Veikindi á heimilinu og lítil orka til innkaupa urðu kveikjan að viskílagaðri piparostasósu með brúnuðu smjöri hjá Andreu Gunnarsdóttur. Hún dró heimagerðar kjötbollur úr frystinum og nýtti það sem til var í eldhúsinu. Útkoman kom svo skemmtilega á óvart að uppskriftin fór beint á bloggið að kvöldmat loknum.

„Við ætluðum ekki að trúa því að máltíð sem varð til í björgunaraðgerðum veikinda skyldi bragðast eins og matur á flottum veitingastað,“ segir Andrea.

Þótt heiti sósunnar gefi fyrirheit um nokkurn viðbúnað segir hún gerð hennar hafa tekið innan við hálftíma. Með kjötbollunum og sósunni bar hún fram franskar kartöflur og rifsberjahlaup.

Viskílöguð piparostasósa með brúnuðu smjöri

Þótt heiti sósunnar gefi fyrirheit um nokkurn viðbúnað segir hún gerð hennar hafa tekið innan við hálftíma. Ljósmynd/Aðsend

  • 50 g smjör
  • 100 ml viskí
  • 180 ml nautasoð
  • 1 piparostur, rifinn
  • 2 dl rjómi
  • 1½ tsk. nýmulinn svartur pipar
  • 1½ tsk. blönduð piparkorn
  • örlítill hvítur pipar
  • ½ nautakraftsteningur
  • 2 tsk. rifsberjahlaup

Aðferð

  1. Bræðið smjörið í litlum potti við vægan hita og látið það brúnast. Samkvæmt Andreu tekur það um 20 mínútur. Fylgist vel með undir lokin svo það brenni ekki.
  2. Takið pottinn af hitanum og hellið viskíinu varlega saman við. Gætið ykkar á heitri gufu. Setjið pottinn aftur á helluna og látið sjóða niður í um tvær mínútur.
  3. Bætið nautasoðinu, rifna piparostinum og nautakraftsteningnum út í. Lækkið hitann og látið malla í nokkrar mínútur.
  4. Bætið blönduðum piparkornum, nýmuldum svörtum pipar og örlitlum hvítum pipar saman við.
  5. Hellið rjómanum út í og látið malla þar til osturinn hefur bráðnað að fullu og sósan þykknað lítillega. Hrærið reglulega.
  6. Smakkið til með rifsberjahlaupinu og berið fram með kjötbollum og frönskum kartöflum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅