Hrósar demókrötum og viðurkennir áhrif stríðsins
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stríðið gegn Íran eiga þátt í miklum ósigri repúblikana í þingkosningunum. Hann ver þó ákvörðun sína um hernaðinn og telur kjósendur skilja mikilvægi hans.
„Ég held að Íran hafi átt þátt í þessu, en um leið skildi fólk mikilvægi þess sem ég hef gert gagnvart Íran,“ sagði Trump í símaviðtali við Fox News nú fyrir stundu.
Þá hrósaði hann demókrötum, andstæðingum sínum, í óvenju jákvæðum tón eftir stórsigur þeirra á repúblikönum í þingkosningunum.
„Mér finnst demókratar hafa staðið sig vel. Það finnst mér í alvöru. Mér finnst þeir hafa staðið sig vel. Þeir börðust af hörku,“ sagði Trump við Fox News.
Bætti hann við að „stemning hafi legið í loftinu“ og að hann „ætti ekki að hafa samviskubit“.
Hannity telur stríðið hafa ráðið miklu
Hækkandi framfærslukostnaður og stríðið gegn Íran voru meðal helstu mála kosningabaráttunnar. Áhrif stríðsins á úrslitin voru einnig til umræðu meðal stuðningsmanna forsetans í nótt.
Á kosningavöku Fox News spurði fréttaþulurinn Bret Baier þáttastjórnandann Sean Hannity hvort úrslitin hefðu orðið önnur ef ekki hefði komið til stríðsins.
Hannity svaraði því játandi og bætti við: „Hundrað prósent.“
Stríðið hefur haft áhrif á útgjöld bandarískra heimila. Hærra eldsneytisverð hefur aukið kostnað við samgöngur og vöruflutninga og verðhækkanir á áburði hafa komið illa við bændur. Áhrifanna hefur því gætt langt út fyrir bensínstöðvarnar.
Í ríkjum á borð við Iowa hafa frambjóðendur demókrata lagt áherslu á þennan kostnað, samhliða gagnrýni á tollastefnu forsetans. Þar hefur demókratinn Josh Turek unnið öldungadeildarsæti af repúblikönum.
Gerði lítið úr stríðinu fyrir kjördag
Kvöldið fyrir kosningarnar dró Trump úr umfangi átaka Bandaríkjanna og Írans í viðtali við Hannity á Fox News.
Hann sagði Bandaríkin geta bundið enda á átökin hvenær sem væri og kvaðst frekar vilja ná samkomulagi til að bjarga mannslífum.
Forsetinn hefur jafnframt haldið því fram í nótt að repúblikanar hefðu unnið stórsigur ef hann hefði sjálfur verið í framboði. Í samtali við New York Times segist hann þó reiðubúinn að sætta sig við úrslitin og vinna með demókrötum.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗