Ingibjörg Ásdís keypti glæsiíbúð í Skuggahverfinu

Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS.

Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS. Ljósmynd/VÍS

Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá tryggingafélaginu VÍS hefur fest kaup á glæsilegri íbúð í Skuggahverfinu. Íbúðin er við Lindargötu og er 98.2 fm að stærð. Blokkin sjálf var reist 2014. 

Ingibjörg Ásdís seldi glæsilegt einbýlishús sitt í Arnarnesinu á dögunum sem stendur við Hegranes í Garðabæ og var íbúðin tekin upp í húsið á 120.000.000 kr. Seljandi íbúðarinnar er Ellen Ragnars Sverrisdóttir fjármálaráðgjafi hjá Arion banka. 

Íbúðirnar í húsinu við Lindargötu 39 eru og hafa alltaf verið eftirsóttar. Gegnheilt parket er á gólfum, gólfhiti og síðir gluggar sem hleypa birtu inn í rýmið. 

Smartland sagði frá því í sumar að Ingibjörg Ásdís hefði fundið ástina í faðmi Bjarna Guðjónssonar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 

Smartland óskar Ingibjörgu Ásdísi til hamingju með íbúðina! 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅