Ráðgjöfin metin á 20 milljarða
Guðmundur Daði Rúnarsson, forstjóri Ganga og brúar, og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið
„Við vonumst til að fá inn mjög góða reynslu af sambærilegum verkefnum. Vonandi verður þetta öflugt teymi sem kemur til starfa,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, forstjóri Ganga og brúar.
Félagið auglýsti á dögunum forval fyrir umfangsmikla ráðgjöf vegna gerðar Sundabrautar og nýrra Hvalfjarðarganga. Um er að ræða verkefnaumsjón og forhönnun.
Útboðið er bæði auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og hér heima og er umsóknarfrestur til 7. desember næstkomandi. Um er að ræða fimm ára samning en virði hans er metið á 150 milljónir evra án virðisaukaskatts. Það jafngildir um 20 milljörðum íslenskra króna. Möguleiki er á framlengingu samningsins og getur hann varað í allt að 20 ár.
Göng og brú er sjálfstætt rekstrar-, fjármögnunar- og eignarhaldsfélag í eigu íslenska ríkisins sem á að sjá um uppbyggingu stærri samgöngumannvirkja hér á landi. Guðmundur Daði var nýverið ráðinn forstjóri félagsins og hann segir að byrjað verði af krafti.
„Þetta er umfangsmikið og mjög mikilvægt útboð sem við erum að ráðast í. Það er gríðarlega spennandi og við höfum ákveðið að vinna hratt og örugglega í að koma þessu af stað,“ segir hann.
Guðmundur Daði segir að fyrirhuguð útboð hafi verið kynnt á opnum degi Ganga og brúar í Hörpu í september. Hátt í 300 gestir mættu þangað og þar af kom þriðjungur frá útlöndum. „Við höfum verið í samtali við mögulega bjóðendur síðan þá. Það hefur gengið gríðarlega vel og áhugi er mikill.“
Hann er spurður um stærð verkefnanna og hvort líklegt megi telja að stærð þeirra kalli á erlenda aðkomu.
„Við teljum að þegar allt verður komið í gang með vonandi Sundabraut og tvöföldun á Hvalfjarðargöngum auk annarra samgönguverkefna munum við þurfa fjölbreytta reynslu. Við teljum að það sé mjög líklegt að íslensku stofurnar verði hluti af teymunum sem muni bjóða í þetta en líklegt er að þær verði með erlenda samstarfsaðila,“ segir hann og ítrekar að um sé að ræða mjög umfangsmikið útboð.
„Áætlaður kostnaður við Sundabraut og Hvalfjörð er um eða yfir 200 milljarðar króna. Það er tíu sinnum stærðin á Ölfusárbrú til að setja þetta í eitthvert samhengi.“
Guðmundur Daði segir að skil á forvalsgögnum séu í byrjun desember en þá taki við yfirferð og í kjölfarið samningaviðræður við teymin. Um 6-7 mánuði geti tekið að velja rétta teymið.
„Svo tekur þetta teymi við boltanum og fer að vinna að forhönnunargögnum, meðal annars með þeim upplýsingum sem þegar liggja fyrir hjá Vegagerðinni, og gera útboðsgögn. Vonandi getum við farið í fyrstu útboð til verklegra framkvæmda árið 2028,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗