Ingibjörg Ásdís keypti glæsiíbúð í Skuggahverfinu
Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá tryggingafélaginu VÍS hefur fest kaup á glæsilegri íbúð í Skuggahverfinu. Íbúðin er við Lindargötu og er 98.2 fm að stærð. Blokkin sjálf var reist 2014.
Ingibjörg Ásdís seldi glæsilegt einbýlishús sitt í Arnarnesinu á dögunum sem stendur við Hegranes í Garðabæ og var íbúðin tekin upp í húsið á 120.000.000 kr. Seljandi íbúðarinnar er Ellen Ragnars Sverrisdóttir fjármálaráðgjafi hjá Arion banka.
Íbúðirnar í húsinu við Lindargötu 39 eru og hafa alltaf verið eftirsóttar. Gegnheilt parket er á gólfum, gólfhiti og síðir gluggar sem hleypa birtu inn í rýmið.
Smartland sagði frá því í sumar að Ingibjörg Ásdís hefði fundið ástina í faðmi Bjarna Guðjónssonar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Smartland óskar Ingibjörgu Ásdísi til hamingju með íbúðina!
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗