Demókratar ná enn öðru sætinu af repúblikönum

Josh Turek á leið út úr kjörstað eftir að hafa greitt atkvæði í gærmorgun. AFP

Demókratinn Josh Turek hefur náð kjöri til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir Iowa, samkvæmt spám NBC News og CBS News. Úrslitin þóttu tvísýn í aðdraganda kosninganna.

Hann hefur betur gegn Ashley Hinson, fulltrúadeildarþingmanni repúblikana, og vinnur þar með enn eitt sætið af flokki Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

Turek tekur við af repúblikananum Joni Ernst, sem sóttist ekki eftir endurkjöri. Enginn demókrati hefur unnið öldungadeildarkosningar í Iowa frá árinu 2008, þegar Tom Harkin var endurkjörinn.

Athygli vekur að Trump fékk um 13 prósentustigum meira fylgi en Kamala Harris í forsetakosningunum í Iowa fyrir tveimur árum. Í kosningabaráttunni hefur Turek meðal annars gagnrýnt áhrif tollastefnu forsetans á bændur í ríkinu.

Tollar og eldsneytisverð í brennidepli

Viðskiptadeilur Trumps hafa komið illa við sojabaunabændur í ríkinu. Jafnframt hefur stríðið gegn Íran þrýst upp verði á eldsneyti og áburði og aukið þannig kostnað bænda.

Hinson, sem hefur setið í fulltrúadeildinni frá 2021, hét því í upphafi að verða helsti bandamaður Trumps í öldungadeildinni.

Þegar leið á kosningabaráttuna lagði hún meiri áherslu á sjálfstæði sitt gagnvart forsetanum og kallaði eftir því að stríðinu gegn Íran lyki þegar í stað með farsælum hætti.

Tvöfaldur gullverðlaunahafi

Turek er 47 ára og hefur setið á ríkisþingi Iowa frá ársbyrjun 2023. Hann var fyrst kjörinn haustið áður með aðeins sex atkvæða mun og var endurkjörinn árið 2024 í kjördæmi þar sem Trump hafði jafnframt betur í forsetakosningunum.

Áður lék Turek hjólastólakörfubolta sem atvinnumaður í Evrópu og keppti fyrir Bandaríkin á fernum Ólympíuleikum fatlaðra.

Hann vann til gullverðlauna í Ríó de Janeiro árið 2016 og aftur í Tókýó árið 2021, auk bronsverðlauna í Lundúnum árið 2012.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅