Beint: Kaflaskipti eftir kosningar

Demókratar hafa náð meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings, samkvæmt spám bandarískra fjölmiðla, eftir röð sigra í ríkjum og kjördæmum þar sem repúblikanar áttu sæti.

Úrslitin þykja mikið áfall fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta. Þegar nýtt þing kemur saman í janúar geta demókratar stöðvað framgang lagafrumvarpa hans, hafnað tilnefningum í dómaraembætti og æðstu stöður stjórnkerfisins og hafið rannsóknir á embættisfærslum stjórnar hans.

Meðal stærstu tíðinda næturinnar eru sigrar demókrata í öldungadeildarkosningunum í Texas, Suður-Karólínu og Kansas, ríkjum þar sem flokkurinn hafði ekki unnið slíkar kosningar í áratugi.

Talningu er þó enn ólokið víða um land og ekki liggur fyrir hversu stór meirihluti demókrata verður í hvorri deild. Úrslit í jöfnum viðureignum geta látið bíða eftir sér í nokkra daga, meðal annars meðan utankjörfundaratkvæði eru talin.

Hér, fyrir neðan beina útsendingu ABC News, verða áfram flutt nýjustu tíðindi af úrslitum kosninganna.

mbl.is

Við þökkum fyrir samfylgdina, umfjölluninni hefur lokið.

í gær

Lindsey Graham fyrir rúmum 10 árum

Stjórnmálaskýrendur eru margir farnir að kenna forsetanum um það mikla tap sem repúblikanar virðast stefna í.

Graham varaði sjálfur við Trump áður en hann skipti um skoðun og gerðist einn af hans ötulustu stuðningsmönnum.

Graham lést fyrir um fjórum mánuðum og systir hans tók við embætti hans í öldungadeildinni fyrir Suður-Karólínu.

Hún laut í lægra haldi fyrir lækninum Annie Andrews, þrátt fyrir að enn í gær hefðu repúblikanar verið taldir líklegri til að sigra í ríkinu.

If we nominate Trump, we will get destroyed.......and we will deserve it.

— Lindsey Graham (@LindseyGrahamSC) May 3, 2016

í gær

Demókratar ná völdum í fulltrúadeildinni

Demókratar hafa náð meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings af repúblikönum.

Meira

í gær

Óvæntur sigur demókrata: Ná öðru sæti til viðbótar

Repúblikanar voru enn taldir líklegri til að halda sætinu daginn fyrir kjördag.

Meira

í gær

„Spennið beltin“

Engan bilbug er að finna á fólki í Hvíta húsinu.

Meira

í gær

Fyrsta svarta konan til að verða ríkisstjóri

Hún er fyrsta svarta konan sem nær kjöri til embættis ríkisstjóra í Bandaríkjunum.

Meira

í gær

Brýtur blað í öldungadeildinni

Pappas er 46 ára og náði fyrst kjöri til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings árið 2018.

Meira

í gær

Sigrar sem glæða vonir demókrata

Demókratar hafa unnið sitt fyrsta öldungadeildarsæti af repúblikönum í þingkosningunum á miðju kjörtímabili Donalds Trump Bandaríkjaforseta, samkvæmt fyrstu tölum.

Meira

í gær

Gæti orðið fyrsti demókratinn síðan árið 1939

Donald Trump Bandaríkjaforseti vann í ríkinu með um 16 prósentustiga mun í forsetakosningunum fyrir tveimur árum.

Meira

í gær

Fá demókratar ríkisstjóra í Texas?

Gina Hinojosa, frambjóðandi demókrata til ríkisstjóra í Texas, er með forskot á Greg Abbott ríkisstjóra í fyrstu tölum úr nokkrum fjölmennum sýslum ríkisins.

Meira

í gær

Demókratar ná öldungadeildarsæti af repúblikönum

Fyrsta sætinu náð. En demókratar þurfa fleiri í nótt.

Meira

í gær

Foxillur út í Fox

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir áhorf á Fox News hafa dregist saman vegna þess að stöðin hafi snúist gegn honum.

Meira

í gær

Vonarstjarna demókrata heldur sæti sínu

Jon Ossoff heldur sæti sínu í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Georgíu, samkvæmt spá NBC News. Hann hefur verið orðaður við forsetaframboð í næstu kosningum.

Meira

í gær

Kjósa og telja í alla nótt

Fyrstu kjörstaðirnir í þingkosningunum í Bandaríkjunum lokuðu klukkan 23 að íslenskum tíma, í austurhluta Indiana og Kentucky. Þeir síðustu loka á Aljútaeyjum í Alaska klukkan sex árdegis miðvikudag.

Meira

í gær

Sakar mótframbjóðandann um kosningasvindl

Dan Sullivan, öldungadeildarþingmaður repúblikana frá Alaska, sakar kosningateymi Mary Peltola, frambjóðanda demókrata, um að hafa fengið nafna hans til að bjóða sig fram í því skyni að villa um fyrir kjósendum. Hann kallar það kosningasvindl.

Meira

í gær

Kjörseðill í Idaho

Þar sem kjósendur eru meðal annars spurðir álits á því hver skuli vera opinber ríkisbyssa Idaho.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅