Trump segist reiðubúinn að vinna með demókrötum

Ummælin bera meiri vott um sáttfýsi en margt af því sem forsetinn hefur áður sagt um kosningarnar. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist reiðubúinn að sætta sig við úrslit þingkosninganna og vinna með demókrötum.

Þetta segir hann í samtali við dagblaðið New York Times. Úrslitin til þessa benda til mikils ósigurs repúblikana.

„Ég er algerlega reiðubúinn að sætta mig við þessi úrslit,“ segir Trump við blaðið.

„Við munum vinna með demókrötum og hlökkum til samstarfsins. Við komumst líklega að einhverju samkomulagi.“

Talar nú um samstarf við demókrata

Ummælin bera meiri vott um sáttfýsi en margt af því sem forsetinn hefur áður sagt um kosningarnar.

Trump hefur ítrekað dregið í efa að þær fari heiðarlega fram og vakið með því áhyggjur af að hann muni ekki sætta sig við ósigur.

Fyrr hafði hann sagst ætla að verða „herra neitunarvald“ og beita neitunarvaldi sínu gegn lagafrumvörpum demókrata ef þeir næðu meirihluta á þingi.

Í færslu á Truth Social í nótt sagði Trump jafnframt að repúblikanar hefðu unnið stórsigur ef hann hefði sjálfur verið í framboði.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅