Fyrsti sigur demókrata í 94 ár
Adam Hamilton, frambjóðandi Demókrataflokksins, hefur sigrað Roger Marshall, sitjandi öldungadeildarþingmann Repúblikanaflokksins, í Kansas. Helstu fréttastöðvar vestanhafs spá þessu nú.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1932 sem demókrati nær kjöri til öldungadeildar Bandaríkjaþings í Kansas. Sigurinn er jafnframt sá fimmti þar sem demókratar vinna sæti af repúblikönum í þingkosningunum sem fram fóru í gær.
Hamilton er 62 ára prestur innan meþódistakirkjunnar og leiðir eitt stærsta safnaðarstarf landsins. Hann hafði ekki áður gegnt kjörnu embætti en lagði áherslu á efnahagsmál, heilbrigðisþjónustu og samvinnu þvert á flokkslínur í kosningabaráttunni.
Marshall, sem er 66 ára læknir, hefur setið í öldungadeildinni frá árinu 2021. Hann var áður þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trumps forseta.
Repúblikanar höfðu haldið sætunum í 94 ár
Kansas hefur um áratugaskeið verið eitt af sterkustu vígjum Repúblikanaflokksins. Trump vann þar afgerandi sigur í forsetakosningunum árið 2024, með rúmlega 16 prósentustiga mun.
Síðasti demókratinn sem hafði náð kjöri til öldungadeildarinnar í Kansas var George McGill árið 1932. Hann tapaði endurkjöri sex árum síðar og síðan þá hafa repúblikanar farið með bæði öldungadeildarsæti ríkisins.
Kosningabaráttan í Kansas vakti töluverða athygli á lokasprettinum, enda hafði Marshall lengi verið talinn eiga öruggt sæti. Trump og JD Vance varaforseti heimsóttu meðal annars ríkið til að styðja framboð hans.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗