Demókratar ná meirihluta í öldungadeildinni

Bygging þinghússins í Washington að kvöldi kjördags. Demókratar munu nú fara með völdin þar. AFP

Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings eftir mikla sigurgöngu í þingkosningunum í nótt.

Flokkurinn hefur unnið að minnsta kosti fimm sæti af repúblikönum, sem fóru inn í kosningarnar með 53 sæti af 100.

Þá hafa demókratar þegar tryggt sér völdin í fulltrúadeildinni.

N-Karólína, S-Karólína og Texas

Fyrsti stóri sigur næturinnar kom í Norður-Karólínu, þar sem Roy Cooper, fyrrverandi ríkisstjóri, sigraði repúblikanann Michael Whatley. Í kjölfarið komu óvæntir sigrar í Suður-Karólínu og Texas, þar sem Annie Andrews og James Talarico unnu sæti af repúblikönum.

Ohio og Kansas

Síðar um nóttina sigraði Sherrod Brown sitjandi öldungadeildarþingmanninn Jon Husted í Ohio og undir morgun bættist Kansas í hópinn.

Þar sigraði Adam Hamilton repúblikanann Roger Marshall og varð fyrsti demókratinn í 94 ár til að ná kjöri til öldungadeildarinnar í ríkinu.

Mikill viðsnúningur

Demókratar hafa jafnframt varið mikilvæg sæti í Georgíu og New Hampshire, þar sem Jon Ossoff og Chris Pappas sigruðu.

Úrslit næturinnar marka því mikinn viðsnúning frá kosningunum árið 2024, þegar repúblikanar náðu meirihluta í öldungadeildinni.

Meirihlutinn mun gera demókrötum kleift að hafa aukið eftirlit með ríkisstjórn Donalds Trumps forseta og torvelda framgang lagafrumvarpa hans síðustu tvö ár forsetatíðarinnar.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅