Sigrar sem glæða vonir demókrata
Demókratar hafa unnið sitt fyrsta öldungadeildarsæti af repúblikönum í þingkosningunum á miðju kjörtímabili Donalds Trump Bandaríkjaforseta, samkvæmt fyrstu tölum.
Úrslitin styrkja stöðu demókrata í baráttunni um meirihluta á Bandaríkjaþingi, en það yrði mikið áfall fyrir Trump ef báðar deildir þingsins féllu í hlut demókrata.
Roy Cooper, vinsæll fyrrverandi ríkisstjóri Norður-Karólínu, er talinn hafa haft betur gegn frambjóðandanum sem Trump handvaldi til að keppa um öldungadeildarsæti ríkisins.
Í Georgíu hefur svo Jon Ossoff, rísandi stjarna í röðum demókrata, náð endurkjöri í öldungadeildina samkvæmt spám fjölmiðla.
Þessir fyrstu sigrar glæða vonir demókrata um að ná meirihluta í báðum deildum þingsins.
Segir róttæka stefnubreytingu í vændum
Kjósendur fá í kosningunum að leggja dóm á það hvernig Trump hefur haldið um stjórnartaumana síðustu tæp tvö ár.
Vaxandi óánægja er meðal kjósenda með háan framfærslukostnað, viðskiptadeilur Trumps og stríðið sem hann hóf gegn Íran. Skoðanakannanir benda til þess að Trump sé í hópi óvinsælustu forseta í sögu Bandaríkjanna.
Hakeem Jeffries, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, segir landið „á barmi róttækrar stefnubreytingar“ og spáir því að flokkur hans nái aftur meirihluta í deildinni.
Trump fylgist með úrslitunum í Hvíta húsinu, að sögn embættismanna. Það eina sem hann hefur látið frá sér fara opinberlega í kvöld er hörð gagnrýni á kosningaumfjöllun Fox News.
Fyrstu tölur frá Flórída sýna að repúblikanar eiga víða undir högg að sækja í baráttunni um fulltrúadeildina. Þar er demókrötum spáð sigri í nokkrum kjördæmum jafnvel þótt þeim hafi verið breytt flokki Trumps í hag, eins og tíðkast meðal beggja stóru flokkanna vestanhafs.
Þannig hefur Anna Paulina Luna, þingkona repúblikana, nauma forystu í kjördæmi þar sem Trump vann með 13 prósentustiga mun árið 2024.
Skiptir miklu fyrir demókrata
Þótt því sé víða spáð að demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni er búist við mjög jafnri baráttu um öldungadeildina, þar sem repúblikanar hafa nauman meirihluta.
Cooper, sem er 69 ára, sigrar Michael Whatley, fyrrverandi formann landsnefndar Repúblikanaflokksins, í Norður-Karólínu. Trump vann þar í öll þrjú skiptin sem hann bauð sig fram til forseta.
Sigur Coopers skiptir demókrata miklu í baráttunni um öldungadeildina. Fyrir kosningar höfðu repúblikanar þar 53 sæti en demókratar 47 að meðtöldum tveimur óháðum þingmönnum sem starfa með þeim.
Cooper, sem gegndi embætti ríkisstjóra í tvö kjörtímabil og hefur aldrei tapað kosningum á nær fjórum áratugum í stjórnmálum, verður fyrsti demókratinn sem kjörinn er í öldungadeildina fyrir Norður-Karólínu frá árinu 2008.
Cooper hefur lagt áherslu á að lækka framfærslukostnað í kosningabaráttunni gegn Whatley, sem er eindreginn stuðningsmaður Trumps. Hann tekur við af repúblikananum Thom Tillis, sem sækist ekki eftir endurkjöri og hefur oft átt í útistöðum við forsetann.
Mögulegur forsetaframbjóðandi
Í Georgíu sigrar Ossoff repúblikanann Mike Collins og heldur þannig sæti sem repúblikanar höfðu vonast til að vinna af demókrötum.
Hinn 39 ára gamli öldungadeildarþingmaður er víða nefndur sem mögulegur forsetaframbjóðandi demókrata árið 2028. Sjálfur segist hann ekki ætla að bjóða sig fram.
Kosið er um öll 435 sæti fulltrúadeildarinnar og 35 af 100 sætum öldungadeildarinnar, auk 36 ríkisstjóraembætta. Til að ná meirihluta í báðum deildum þurfa demókratar að bæta við sig þremur sætum í fulltrúadeildinni og fjórum í öldungadeildinni.
Afleiðingar fyrir Trump
Missi repúblikanar meirihlutann í fulltrúadeildinni geta demókratar stöðvað framgang lagafrumvarpa Trumps og hafið víðtækar rannsóknir á stjórn hans, meðal annars á stríðinu í Íran, fjöldabrottvísunum innflytjenda án dvalarleyfis og meintri spillingu.
Nái demókratar einnig meirihluta í öldungadeildinni geta þeir hafnað tilnefningum Trumps í dómaraembætti og æðstu stöður stjórnkerfisins.
„Leiga, matvörur, reikningar fyrir veitur og fasteignaskattar halda áfram að hækka og ég vil fá fólk á þing sem gerir raunverulega eitthvað í kostnaðinum,“ segir Taylor Cook, 24 ára kjósandi í Los Angeles, við AFP.
Trump ver verk sín í síðasta sjónvarpsviðtali sínu á kjördag og fer lofsamlegum orðum um tollastefnu sína, hertar aðgerðir í innflytjendamálum og hernaðinn gegn Íran.
„Við verðum að halda Ameríku mikilfenglegri. Við erum mikilfengleg núna. Við vorum hræðileg fyrir tveimur árum,“ segir forsetinn áttræði við Fox News.
Maru Restrepo, sjötugur kjósandi repúblikana í Miami, segir við AFP að demókratar séu orðnir „mjög sósíalískir“.
Enn eru uppi áhyggjur af því að Trump kunni að véfengja úrslitin fari kosningarnar flokki hans í óhag. Eftir ósigur sinn í forsetakosningunum 2020 reyndi hann að hnekkja úrslitum þeirra.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗