Fjórtán ára gaf sig fram við lögreglu

Drengurinn er 14 ára gamall stuðningsmaður Coventry.

Drengurinn er 14 ára gamall stuðningsmaður Coventry. AFP/Peter Powell

Fjórtán ára drengur hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að myndefni virtist sýna stuðningsmann hæðast að stuðningsmönnum Sunderland með ljósmynd af Bradley Lowery.

Atvikið átti sér stað í leik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í Coventry á laugardag.

Lowery, sem var stuðningsmaður Sunderland, lést úr krabbameini sex ára gamall árið 2017.

„Ítarleg rannsókn er hafin,“ sagði lögreglan í West Midlands í yfirlýsingu og bætti við að drengurinn yrði yfirheyrður.

„Það getur varla talist saklaust grín að hæðast að barni sem lést úr krabbameini?“ sagði Gemma, móðir Bradleys, í yfirlýsingu sem birt var í gegnum sjóð hans.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅