Glæsileg endurkoma United
Manchester United vann glæsilegan endurkomusigur á Roma, 3:2, á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld.
Matías Soulé kom Roma yfir á 11. mínútu og Donyell Malen gerði annað markið á 17. mínútu úr víti. Var staðan í hálfleik því 2:0.
Bruno Fernandes minnkaði muninn með marki úr víti á 58. mínútu og Matheus Cunha jafnaði á 83. mínútu.
Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Cunha sitt annað mark og innsiglaði sigurinn.
Hann fékk gult spjald fyrir að rífa sig úr treyjunni þegar hann skoraði og svo annað í uppbótartíma fyrir brot.
Það kom ekki að sök og United hélt út.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗