Andri Lucas hættir ekki að skora

Andri Lucas Guðjohnsen raðar inn mörkum með Blackburn.

Andri Lucas Guðjohnsen raðar inn mörkum með Blackburn. Ljósmynd/Alex Nicodim

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði mark Blackburn er liðið mátti þola tap á heimavelli gegn Stoke, 2:1, í ensku B-deildinni í fótbolta.

Landsliðsframherjinn hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skoraði sex mörk í síðustu sex leikjum.

Þá hefur hann skorað tíu mörk í fjórtán leikjum í öllum keppnum með Blackburn á leiktíðinni.

Liðið er í 14. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 14 leiki.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅