Sigurganga Hauka hélt áfram

Guðmunda Auður Guðjónsdóttir hjá Haukum með boltann í kvöld.

Guðmunda Auður Guðjónsdóttir hjá Haukum með boltann í kvöld. mbl.is/Eyþór

Haukar eru áfram með fullt hús stiga á toppi úrvalsdeildar kvenna í handbolta eftir heimasigur á Gróttu, 27:22, í fyrsta leik 8. umferðarinnar í kvöld.

Haukakonur voru með 13:10-forskot í hálfleik og reyndust sterkari í seinni hálfleik. Grótta er í sjöunda sæti með fjögur stig.

Eins og oft áður í vetur var Jóhanna Margrét Sigurðardóttir markahæst hjá Haukum með sex mörk. Embla Steindórsdóttir gerði fimm. Sara Sif Helgadóttir varði 12 skot í markinu.

Katrín Scheving Thorsteinsson skoraði sjö mörk fyrir Gróttu og Elísabet Ása Einarsdóttir fjögur.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅