Sigurganga Hauka hélt áfram
Haukar eru áfram með fullt hús stiga á toppi úrvalsdeildar kvenna í handbolta eftir heimasigur á Gróttu, 27:22, í fyrsta leik 8. umferðarinnar í kvöld.
Haukakonur voru með 13:10-forskot í hálfleik og reyndust sterkari í seinni hálfleik. Grótta er í sjöunda sæti með fjögur stig.
Eins og oft áður í vetur var Jóhanna Margrét Sigurðardóttir markahæst hjá Haukum með sex mörk. Embla Steindórsdóttir gerði fimm. Sara Sif Helgadóttir varði 12 skot í markinu.
Katrín Scheving Thorsteinsson skoraði sjö mörk fyrir Gróttu og Elísabet Ása Einarsdóttir fjögur.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗