Andri Lucas hættir ekki að skora
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði mark Blackburn er liðið mátti þola tap á heimavelli gegn Stoke, 2:1, í ensku B-deildinni í fótbolta.
Landsliðsframherjinn hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skoraði sex mörk í síðustu sex leikjum.
Þá hefur hann skorað tíu mörk í fjórtán leikjum í öllum keppnum með Blackburn á leiktíðinni.
Liðið er í 14. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 14 leiki.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗