Þetta þorir Nara Smith ekki að baka
Nara Smith umkringd brauði í nýrri matreiðslubók sinni, Homemade. Smjördeigshornin á hún þó enn eftir að baka frá grunni. Skjáskot/Amazon
Nara Smith er þekkt fyrir að búa til nánast hvað sem er frá grunni. En jafnvel hún veigrar sér við einu verkefni í eldhúsinu: að baka smjördeigshorn.
Þetta kom fram í spjalli hennar við People á viðburði tímaritsins Better Homes & Gardens í New York, þar sem hún kynnti nýja matreiðslubók sína, Homemade.
„Að búa til smjördeigshorn,“ svaraði Smith þegar hún var spurð hvað hún hefði ekki enn treyst sér til að útbúa frá grunni. „Sem er svo skrýtið, en það er virkilega ógnvekjandi að búa til smjördeigshorn. Og ég hef ekki prófað það enn þá.“
Smith hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum fyrir metnaðarfulla eldamennsku, gjarnan klædd í glæsilegan fatnað. Smjördeigshornin hafa þó enn ekki bæst á listann yfir það sem hún útbýr sjálf.
Réttir sem sækja innblástur til Þýskalands
Hún hefur engu að síður fundið þeim stað í eldhúsinu. Í myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðlum útbjó hún morgunverðarrétt úr tilbúnum smjördeigshornum og blönduðum berjum. Hornin skar hún í bita, setti í eldfast mót og hellti eggjablöndu yfir áður en rétturinn fór í ofninn.
Matreiðslubókin Homemade kom út 13. október. Þar deilir Smith bæði uppskriftum sem hafa vakið athygli á netinu og réttum sem sækja innblástur í uppvöxt hennar í Þýskalandi.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
