Fjórtán ára gaf sig fram við lögreglu
Fjórtán ára drengur hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að myndefni virtist sýna stuðningsmann hæðast að stuðningsmönnum Sunderland með ljósmynd af Bradley Lowery.
Atvikið átti sér stað í leik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í Coventry á laugardag.
Lowery, sem var stuðningsmaður Sunderland, lést úr krabbameini sex ára gamall árið 2017.
„Ítarleg rannsókn er hafin,“ sagði lögreglan í West Midlands í yfirlýsingu og bætti við að drengurinn yrði yfirheyrður.
„Það getur varla talist saklaust grín að hæðast að barni sem lést úr krabbameini?“ sagði Gemma, móðir Bradleys, í yfirlýsingu sem birt var í gegnum sjóð hans.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗