Arteta braut reglurnar 44 sinnum

Mikel Arteta.

Mikel Arteta. AFP/Henry Nicholls

Graham Scott, fyrrverandi dómari, segir að Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hafi farið út fyrir boðvang sinn 44 sinnum áður en hann fékk áminningu í 2:0-sigri félagsins á Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á dögunum.

„Hann er svolítið ósvífinn, ef ég á að vera hreinskilinn,“ sagði Scott við talkSPORT. „Ég horfði aftur á leikinn gegn Everton og hann fór út fyrir boðvanginn sinn 44 sinnum áður en hann fékk gula spjaldið.“

Arteta hafði greint frá því að hann væri að safna saman myndefni af knattspyrnustjórum annarra liða að fara út fyrir boðvanga sína án þess að vera refsað.

Spánverjinn fékk sína aðra áminningu á tímabilinu gegn Everton og á yfir höfði sér hliðarlínubann ef hann fær eina til viðbótar.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅